Með Haaland á toppi vinsældalistans Valur Páll Eiríksson skrifar 11. júlí 2026 11:30 Erik Sandberg hefur verið öflugur í vörn ÍA undanfarin ár. Hann fylgist spenntur með HM líkt og aðrir Norðmenn. Vísir/Ívar Fannar Fyrrverandi liðsfélagi Erling Haaland skemmtir sér vel yfir heimsmeistaramótinu í fótbolta þessa dagana. Lag sem þeir félagar gáfu út sem unglingar er á toppi allra vinsældalista hjá HM óðri norski þjóð.
Það má með sanni segja að HM fár gangi yfir Noreg þessa dagana. Það fer ekki framhjá Erik Sandberg, leikmanni ÍA, sem lék með Haaland í yngri landsliðum. Enda er það ekki á hverjum degi sem Noregur slær Brasilíu út á stórmóti. „Það er galið að fylgjast með þessu. Það er eins og það sé eitt stórt partý í Noregi. Enginn skilur hvað er í gangi. Allir eru hamingjusamir. Að vinna Brasilíu með þessum hætti er „aldrei vekja mig“ augnablik fyrir Noreg. Alveg klárt,“ Vinsælastir í Noregi Þeir Erik og Erling Haaland gerðu lag ásamt Erik Botheim, leikmanni Malmö, í yngri landsliðsverkefni fyrir áratug. Heimsfrægi plötusnúðurinn Kygo gerði í vikunni endurblöndu (e. remix) af laginu. Það lag er í dag á toppi allra vinsældalista í Noregi. „Ég veit ekki hvað skal segja. Ég trúi þessu ekki. Enginn okkar bjóst við þessu þegar við sömdum þetta lag í gríni fyrir 10 árum síðan. Við vorum orðnir efstir í Noregi strax í gær og þriðju í Svíþjóð,“ „Við vorum allir miklir aðdáendur Kygo, að hann, heimsfrægur plötusnúður endurblandi lagið okkar. Enginn okkar sá það fyrir,“ segir Sandberg léttur. Þurfa að sækja innblásturs til Íslands 2016 Noregur mætir Englandi í 8-liða úrslitum á HM í kvöld. En hvernig metur Erik möguleika Noregs í þeim leik? „Augljóslega er England sigurstranglegra liðið. En ég held að við eigum góða möguleika. Það er kominn skriðþungi með okkur og við förum pressulausir inn í leikinn. Við vitum að við erum góðir og eigum möguleika, svo allt getur gerst“ segir Sandberg og bætir við: „Við þurfum að sækja innblástur til norrænna bræðra okkar á Íslandi sem unnu England fyrir tíu árum. Ef við lærum af ykkur gætum við náð þessu yfir línuna. Það væri stórt!“ Fréttina má sjá í spilaranum að ofan.
Noregur HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Norski framherjinn Erling Braut Haaland gefur sínu liði ekki mikla möguleika á því að vinna heimsmeistaramótið og sagði alla pressuna vera á enska landsliðinu fyrir átta liða úrslitin á laugardag. 9. júlí 2026 23:02 Veikindi herja á norska liðið Ståle Solbakken, þjálfari norska fótboltalandsliðsins, segir að nokkrir leikmenn þess glími við veikindi. Noregur mætir Englandi í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins á laugardaginn. 8. júlí 2026 08:32 Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Erling Haaland hefur vakið mikla athygli í kringum yfirstandandi heimsmeistaramót. Ekki síður utan vallar en innan hans. Í vikunni sýndi hann uppstoppuð nagdýr sem hann hefur komið upp á hótelherbergi sínu. 9. júlí 2026 11:30 Haaland orðinn stærri en Manchester City Það er oft talað um að einn leikmaður liðs sé aldrei stærri en liðið sem hann spilar með en stærsta stjarna Manchester City er bókstaflega orðin stærri en enska úrvalsdeildarfélagið sitt. 8. júlí 2026 23:15 Norska landsliðið flúði hótelið sitt Norðmenn ákváðu að flytja af hótelinu sem þeim hafði verið úthlutað fyrir komandi leik sinn á heimsmeistaramótinu í Miami. 8. júlí 2026 19:24 Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Sjá meira
„Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Norski framherjinn Erling Braut Haaland gefur sínu liði ekki mikla möguleika á því að vinna heimsmeistaramótið og sagði alla pressuna vera á enska landsliðinu fyrir átta liða úrslitin á laugardag. 9. júlí 2026 23:02
Veikindi herja á norska liðið Ståle Solbakken, þjálfari norska fótboltalandsliðsins, segir að nokkrir leikmenn þess glími við veikindi. Noregur mætir Englandi í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins á laugardaginn. 8. júlí 2026 08:32
Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Erling Haaland hefur vakið mikla athygli í kringum yfirstandandi heimsmeistaramót. Ekki síður utan vallar en innan hans. Í vikunni sýndi hann uppstoppuð nagdýr sem hann hefur komið upp á hótelherbergi sínu. 9. júlí 2026 11:30
Haaland orðinn stærri en Manchester City Það er oft talað um að einn leikmaður liðs sé aldrei stærri en liðið sem hann spilar með en stærsta stjarna Manchester City er bókstaflega orðin stærri en enska úrvalsdeildarfélagið sitt. 8. júlí 2026 23:15
Norska landsliðið flúði hótelið sitt Norðmenn ákváðu að flytja af hótelinu sem þeim hafði verið úthlutað fyrir komandi leik sinn á heimsmeistaramótinu í Miami. 8. júlí 2026 19:24