Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. júlí 2026 16:12 Meta á samfélagsmiðlana Instagram og Facebook. Getty Evrópusambandið hótar að sekta Meta breyti þeir ekki ávanabindandi hönnun samfélagsmiðlanna Instagram og Facebook. Sektin getur numið allt að sex prósentum af heildarveltu þeirra á heimsvísu.
Í bráðabirgðaniðurstöðum Evrópusambandsins segir að eiginleikar á við endalausa skrunun, sjálfvirka spilun myndbanda og sérsniðin meðmæli geti hvatt til „áráttukenndrar notkunar“ samfélagsmiðla, sérstaklega meðal barna og unglinga. Endalaus straumur efnis „setti heilann í sjálfstýringu og stuðlaði að óheilbrigðum venjum“. „Að vernda líkamlega og andlega heilsu Evrópubúa verður að vera forgangsatriði hjá samfélagsmiðlafyrirtækjum,“ er haft eftir Henna Virkkunen, yfirmanni tæknimála hjá Evrópusambandinu, í tilkynningu sem BBC greinir frá. Talsmaður tæknirisans Meta sagði að fyrirtækið væri ósammála niðurstöðunum þar sem þær taki ekki tillit til þeirra skrefa sem þegar hafa verið tekin til að vernda unglinga. Þeir segjast hafa innleitt unglingareikninga þar sem foreldrar eru við stjórnvölinn og gerir þeim kleift að loka fyrir aðganginn á nóttunni og takmarka daglegan skjátíma. Framkvæmdastjórnin sagði hins vegar auðvelt að hunsa tímastjórnunartæki samfélagsmiðlanna og drægju þau ekki marktækt úr notkun á miðlunum. Næstu skref Meta eru að fara yfir sönnunargögn gegn sér og skila inn formlegu svari. „Við deilum skuldbindingu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að veita unglingum örugga og jákvæða upplifun á netinu og munum halda áfram að eiga uppbyggileg samskipti við þau,“ segir talsmaður Meta.
Samfélagsmiðlar Meta Evrópusambandið Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira