Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Eiður Þór Árnason skrifar 11. júlí 2026 20:28 Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, og ljósmynd sem var tekin í fjörunni í dag, að sögn Paul Watson-samtakanna. Aðsend/Paul Watson-samtökin Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands segir að fyrri yfirlýsing um óásættanlega meðhöndlun Hvals hf. á soðvatni hafi byggt á röngum upplýsingum. Fitugildra í vinnslustöðinni virðist virka en unnið sé að því að greina hvort fita og önnur efni séu fjarlægð með fullnægjandi hætti. Myndefni sem fulltrúar Paul Watson-samtakanna segjast hafa tekið í dag sýnir mengun í fjörunni við vinnslustöðina sem heilbrigðiseftirlitið hefur ekki séð áður.
Samtökin sem reyna að hindra veiðar Hvals hf. vöktu athygli á því að áberandi hvít slikja hafi sést nærri vinnslustöð fyrirtækisins í Hvalfirði í dag. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins segir erfitt að leggja mat á hana fyrr en niðurstöður fáist úr greiningu á sýnum úr frárennslisvatni vinnslustöðvarinnar. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands tók starfshætti vinnslustöðvar Hvals til skoðunar eftir að tilkynning barst um mögulega yfirborðsmengun frá vinnslunni. Fyrirtækið brást ekki við tilkynningu eftirlitsins í tvo mánuði sem sagði að þvingunaraðgerðir kæmu til greina ef ekki yrði brugðist við fyrir daginn í dag. Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri eftirlitsins, segir að bréf hafi loks borist frá fyrirtækinu í gær. Hvalur hafi tekið vel í athugasemdir en nýleg sýnataka muni vonandi leiða í ljós hvort mengunarvarnir séu fullnægjandi. Klippa: Mengun í fjörunni nærri vinnslustöð Hvals Fitugildran virtist virka Áðurnefnt soðvatn verður til við vinnslu á hvalamjöli þegar hvalbein eru soðin. „Við fengum upplýsingar í eftirliti um að þetta soðvatn væri að fara í gegnum fitugildru sem gerir hana þá algjörlega óvirka. En þetta virðast hafa verið rangar upplýsingar hjá aðila sem var ekki alveg nógu vel inni í þessari framleiðslulínu. Núna liggur það fyrir að þetta soðvatn er kælt,“ segir Þorsteinn í samtali við Vísi. Áður var greint frá því að starfsemi vinnslustöðvarinnar væri mögulega í uppnámi vegna ófullnægjandi hreinsunar og skorts á viðbrögðum. Myndefnið var tekið á þriðja tímaum í dag, að sögn samtakanna.Captain Paul Watson Foundation UK „Við erum í sjálfu sér búin að fara þarna núna í eftirlit og taka myndir. Það er enn þá að sjá að það er svolítill fugl í útrásinni en að sama skapi virðist fitugildran vera að virka fínt og hún er að safna fitu. Hitastigið í gildrunni er um einhverjar 20 gráður sem er alveg ásættanlegt, þannig að ég gæti ímyndað mér að hún sé að virka.“ Óljóst hvort búnaður hreinsi önnur efni með fullnægjandi hætti Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort verið sé að hreinsa prótein og önnur næringarefni úr vatninu sem fer út í sjó frá vinnslustöð Hvals með fullnægjandi hætti. Áðurnefndum sýnum sem tekin voru í vikunni er ætlað að leiða það í ljós, að sögn Þorsteins. Uppsafnað efni sést í fjörunni nálægt vinnslustöðinni en ekki er staðfest að það komi frá vinnslustöð Hvals hf. Captain Paul Watson Foundation UK Sjónrænt mat hafi sýnt að lítill litamunur væri á þeim vökva sem fari inn í hreinsibúnaðinn og þeim sem komi út úr honum. Fitugildran sé þó að virka. „Það er greinilega fita í gildrunni fyrir hreinsun en nánast enga að sjá eftir hreinsun.“ Þorsteinn segir að þegar niðurstöður skili sér verði metið hvort búnaðurinn sem Hvalur sé að nota sé fullnægjandi eða fyrirtækið þurfi að grípa til frekari ráðstafana. Sú krafa sé gerð til fyrirtækja að þau standist kröfur um mengunarvarnir í starfsleyfi þeirra. Skólpútrás fyrirtækisins sé hið minnsta lögleg og nái út fyrir stórstraumsfjörumörk eins og lög geri ráð fyrir. Erfitt að leggja mat á stöðuna út frá ástandinu í fjörunni Þorsteinn skoðaði sumar af myndunum sem Paul Watson-samtökin deildu með fréttastofu og segir að Heilbrigðiseftirlitið hafi ekki áður séð mengun í fjörunni. „Þó að það sé líklegt að þetta sé frá Hval hf. þá er erfitt að fullyrða það. Við bíðum eftir niðurstöðum úr fitumælingum.“ „Ef við erum að tala um alveg uppi í fjöruborðinu þá getur það auðvitað verið hvað sem er. Það er alveg þekkt að það getur verið hvít froða við eðlilegar aðstæður. Þannig að við þurfum alltaf í raun að meta þetta út frá því sem við sjáum í fyrirtækinu sjálfu og í lögnum þess. Annars erum við farin að spá og spekúlera svo mikið hvort þetta sé að koma frá þeim eða einhverjum öðrum. Þannig að það er eiginlega aldrei hægt að eiga við það sem við erum með úti í sjó, af því þá er búið að þynna það sem kemur frá fyrirtækinu.“ Fyrirtækið tekið vel á frávikum fram að þessu „Við eigum að hafa eftirlit með því að fyrirtækið sé að fara eftir löggjöfinni og við munum gera það áfram.“ Þorsteinn segir að það hafi komið fram í svarinu frá Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals, til heilbrigðiseftirlitsins sem barst í gær að verið sé að skoða nýjan búnað sem gæti virkað til bóta fyrir mengunarvarnir. „Hvalur í sjálfu sér hefur alveg tekið af myndarskap á frávikum, þannig að ég á ekkert von á öðru en að svona málin verði leyst ef það eru einhver vandamál.“ Ekki náðist í Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hvalir Hvalveiðar Heilbrigðiseftirlit Umhverfismál Hvalfjarðarsveit Tengdar fréttir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur tekið starfshætti vinnslustöðvar Hvals til skoðunar eftir að eftirlitinu barst tilkynning um mögulega yfirborðsmengun frá vinnslunni. Eftirlitið lítur málið grafalvarlegum augum og kemur til greina að beita þvingunarúrræðum ef ekki verður brugðist við tafarlaust. 30. júní 2026 20:31 Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla með klukkustundar millibili Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Annar árekstur á sama vegkafla með klukkustundar millibili Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Sjá meira
Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur tekið starfshætti vinnslustöðvar Hvals til skoðunar eftir að eftirlitinu barst tilkynning um mögulega yfirborðsmengun frá vinnslunni. Eftirlitið lítur málið grafalvarlegum augum og kemur til greina að beita þvingunarúrræðum ef ekki verður brugðist við tafarlaust. 30. júní 2026 20:31