Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar 15. júlí 2026 18:03 Þráinn Farestveit ritar grein undir fyrirsögninni „Sprúttsalar", lög sem gilda… þegar hentar, og hefur þann fágæta kost umfram flesta greinahöfunda að viðurkenna sjálfur, í miðri röksemdafærslu, að „Kannski höfum við bara misskilið hvernig réttarríkið virkar," Það er drengilega mælt og af því tilefni er sjálfsagt að verða við óskinni og fara saman yfir námsefnið. Byrjum á kjarnanum. Þráinn segir að lög séu ekki tillögur og dómar ekki álit, heldur „niðurstaða sjálfstæðra dómstóla sem stjórnvöldum ber að virða og framfylgja." Þetta er rétt - svo langt sem það nær. Það sem gleymist er smáatriði sem maður með fjörutíu ára feril í refsivörslunni ætti flestum fremur að kannast við: dómur héraðsdóms, sem áfrýjað hefur verið, er einmitt ekki lokaniðurstaðan. Hann er niðurstaða fyrsta dómstigs af þremur. Yfir héraðsdómi er Landsréttur og yfir honum Hæstiréttur, og sú stofnun sem heitir áfrýjun er ekki uppfinning sprúttsala heldur eitt af grundvallaratriðum réttarríkisins - þeim sömu og Þráinn kveðst bera fyrir brjósti. Sakleysi uns sekt er sönnuð, réttur manns til að fá mál sitt endurskoðað á æðra dómstigi: þetta eru ekki formsatriði sem tefja framgang réttvísinnar, þetta er réttvísin. Um hitt málið sem Þráni láðist að fjalla um, þ.e. stefnu ÁTVR gegn Sante er það að segja að þar féll endanlegur dómur í héraði þar sem allar málsástæður Sante voru samþykktar í dómsorði. ,,Ríkið” sá ekki flöt á að áfrýja þeim dómi þannig að heilt yfir er staðan 1-0 frelsinu í vil þó svo að hinn fráleiti málatilbúnaður gegn Smáríkinu sé staddur í hálfleik. Þráinn spyr hvort þeir sem aki sviptir ökuréttindum megi þá ekki líka bera fyrir sig að umferðarlögin séu úrelt. Nei, auðvitað ekki. En munurinn er sá að enginn hefur áfrýjað umferðarlögunum og eftirlitsstofnun EFTA hefur ekki óskað eftir skýringum frá íslenska ríkinu á því hvernig hægri beygjur samrýmist EES-samningnum. Í máli áfengissölunnar liggur hvort tveggja fyrir: dóminum hefur verið áfrýjað og ESA hefur beðið ríkið að gera grein fyrir fyrirkomulagi sínu á sölu áfengis sem augljóslega er brot á EES samningnum (sem og jafnræðisreglu og atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrár). Þegar yfirþjóðleg eftirlitsstofnun biður ríkið að útskýra sín eigin lög er fullyrðingin um að málið sé jafn einfalt og ölvunarakstur ekki lögspeki heldur óskhyggja. Þráinn hefur reyndar rétt fyrir sér um að tvískinnungur sé í spilinu. Hann finnur hann bara á röngum stað. Sama ríki og lætur ákæra mann fyrir að selja eina þriggja lítra belju af chardonnay - og kostar hann hundrað þúsund króna sekt, átta daga fangelsi til vara og hátt í fimm milljónir í málsvarnarlaun - útleigir sjálft stærstu vínbúð landsins í Fríhöfninni, þar sem áfengissala hefur verið gefin frjáls; hefur heimilað sölu áfengis á framleiðslustað; og hefur nú lagt fyrir Alþingi frumvarp til að skýra reglur um netverslun. Annar armur ríkisins hefur afsalað einokunarréttinum sjálfur í komusalnum í Keflavík á meðan hinn kallar það sprúttsölu úr heimahúsi. Ef einhver hér gerir lög að einhverju sem gildir „þegar hentar" er það ekki netverslunin, heldur eigandinn að einokuninni. Þráinn og félagar gætu líka tekið fund með fyrrum forstjóra ÁTVR og spurt hann hvort einokunarréttur ÁTVR sé raunverulega til staðar eftir að brugghúsafrumvarpið varð að lögum: Og þá að sprúttsalanum. Sprúttsalinn seldi óskattlagt landa úr skotti framhjá ríkinu hverjum sem hafa vildi. Netverslun greiðir áfengisgjald og virðisaukaskatt af hverri flösku, gefur út reikning með kennitölu og bíður niðurstöðu dómstóla fyrir opnum tjöldum. Að kalla skattgreiðanda með fullt bókhald sprúttsala vegna þess að manni mislíkar varan er dálítið eins og að kalla mann smyglara af því hann taldi fram frádrátt sem manni þykir djarfur - með þeim mun þó að hér bíður frádrátturinn aðeins staðfestingar æðri dómstiga. Þráinn undrast að auglýsingar frá fyrirtækinu birtist á RÚV, fjölmiðli í almannaeigu undir stjórn fyrrverandi lögreglustjóra. En það fer heldur illa við kenninguna um opinskáa lögleysu. Lögfræðingar RÚV eru ekki þekktir að sérstakri hlýju í garð vínsala. Að þeir skuli engu að síður meta starfsemina nægilega löglega til að selja henni auglýsingapláss er ekki vitnisburður um tvískinnung, heldur vísbending um að málið sé ekki sú lokaða sprúttsaga sem greinin lýsir. Það er sjálfsagt að taka undir með Þráni um eitt: aldurseftirlit skiptir máli, og sé því ábótavant á að laga það eins og viðurkennd brot ÁTVR í öllum ársreikningum undanfarin áratug staðfesta. En leiðin að því heitir skýr löggjöf og skýrar reglur - nákvæmlega það sem frumvarpið fyrir Alþingi snýst um - ekki sú að sleppa áfrýjuninni og fullyrða að lögin séu þegar kristaltær. Sá sem raunverulega ber hag lýðheilsu fyrir brjósti ætti að fagna því að atvinnugreinin starfi uppi á yfirborðinu, með reikninga og kennitölur og aldursmörk sem hægt er að setja í lög fremur en niðri í skotti á leigubíl þar sem hvorki næst í eftirlitið né skattinn. Þráinn segist í fjörutíu ár hafa sagt brotamönnum að það skipti engu máli hvort þeim finnist lögin sanngjörn. Rétt skal vera rétt. En það skiptir þá heldur engu máli hvort Þráni finnist áfrýjunin óþægileg. Réttarríkið er ekki fólgið í því að sá sem tapar á fyrsta dómstigi sé tekinn af lífi áður en æðri dómstig fá málið til meðferðar. Það er einmitt fólgið í hinu: að hann fái að láta á það reyna. Lög gilda jafnt fyrir alla - líka fyrir þann sem seldi beljuna af chardonnay, og líka meðan hann bíður Landsréttar. Alltaf. Höfundur er eigandi Sante. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Netverslun með áfengi Drykkir Arnar Sigurðsson Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar