Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. júlí 2026 08:01 Bergþór Ólason er helmingseigandi félagsins á móti föður sínum. vísir/vilhelm Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóð í Mosfellsbæ í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er helmingseigandi félagsins á móti föður sínum. Krafan er upp á tæpan milljarð króna.
Greint er frá þessu í Heimildinni í dag en í viðtali segir Bergþór að unnið sé að málinu og að hann eigi ekki von á að af nauðungarsölunni verði. Sömuleiðis segist hann hvorki vera á launum hjá félaginu né hafa fengið greiddan arð. Lóðirnar sem um ræðir eru við Bjarkarholt 32 og 34 í Mosfellsbæ, á móti Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Lóðirnar eignuðust Bergþór og faðir hans þegar þeir keyptu félagið Render Centium sem átti þær árið 2023 í gegnum félag sitt Byggingalausnir ehf. Á lóðunum stóðu áður hús sem hafa verið rifin. Nauðungarsalan var auglýst í Lögbirtingablaðinu 2. júlí þar sem fram kemur að Efniviður ehf., félag sem fæst við leigu atvinnuhúsnæðis, og Arion banki hafi farið fram á nauðungarsöluna vegna krafna upp á 981 milljón króna. Samkvæmt umfjöllun Heimildarinnar stóð til að reisa hjúkrunarheimili á lóðinni í samvinnu við Eir og Mosfellsbæ. Fallið var frá því fyrr á þessu ári. Bergþór Ólason er raunverulegur eigandi helmings í félaginu Render Centium að því er fram kemur í fyrirtækjaskrá Skattsins. Eignarhaldið er skilgreint sem óbeint eignarhald með óbeinu atkvæðavægi. Helminginn á hann á móti Óla Jóni Gunnarssyni föður sínum.
Miðflokkurinn Byggingariðnaður Mosfellsbær Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira