Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson skrifar 17. júlí 2026 15:02 Stundum segir ein mynd meira en mörg orð. Þessi mynd öskrar á okkur þann veruleika að af þeim þúsund störfum sem urðu til á seinasta ári (árstaktur) voru 96% hjá hinu opinbera. Sem sagt 962 opinber störf á móti 38 störfum á almennum vinnumarkaði. Árstaktur, mynd og tölfræði tekin saman af Ragnari M. Gunnarssyni. Þetta var þá uppskeran af hinu margboðaða „verðmætasköpunarhausti“ ríkisstjórnarinnar. Haustið sem varð að ráðningarvori ríkisins Ég vil taka skýrt fram að opinber störf eru ekki óþörf störf. Kennarar, hjúkrunarfræðingar, lögreglumenn, starfsfólk leikskóla og þeir sem sinna öldruðum og fötluðu fólki vinna ómetanleg störf. Þetta er fólkið sem heldur samfélaginu gangandi. Málið snýst ekki um fólkið. Það snýst um hlutföllin og hver stendur undir hverjum. Opinber þjónusta verður ekki fjármögnuð með fleiri opinberum störfum. Hún er fjármögnuð með verðmætum sem verða til í atvinnulífinu. Með útflutningi, framleiðslu, nýsköpun, fjárfestingu og vinnu fólks sem selur vöru og þjónustu á markaði. Einkaframtakið sett í frost Þróunin á sér auðvitað efnahagslegar skýringar. Vextir eru háir, fjármögnun dýr og óvissa mikil. Seðlabankinn hækkaði meginvexti í 7,75% í maí og sagði sjálfur að störfum væri hætt að fjölga og að dregið hefði úr ráðningaráformum fyrirtækja. Fjárfesting segir sömu sögu. Á fyrsta ársfjórðungi dróst fjármunamyndun saman um 12%. Fjárfesting atvinnuveganna dróst einnig saman um 12% og fjárfesting í íbúðarhúsnæði um rúm 8%. Fyrirtæki og heimili hafa stigið á bremsuna. Hið opinbera fór hins vegar með fótinn á bensingjöfina. Hið opinbera heldur áfram að eyða Á meðan heimilin og atvinnulífið eru að hægja á sér heldur hið opinbera áfram að þenjast út. Útgjöld hins opinbera jukust um 8,3% á fyrsta ársfjórðungi en tekjurnar aðeins um 3,8%. Hallinn varð 23,7 milljarðar króna á aðeins þremur mánuðum. Þetta er sérkennileg hagstjórn. Atvinnulífið er kælt með háum vöxtum, auknum álögum og óvissu. Samhliða heldur hið opinbera áfram að auka útgjöld og fjölga starfsfólki. Heimilin og fyrirtækin eru látin bera vaxtabyrðina en hið opinbera heldur sínu striki. Síðan eru sömu heimili og fyrirtæki látin greiða reikninginn með hærri sköttum, hærri gjöldum og enn hærri vöxtum. Ekki allt ríkisstjórninni að kenna Ríkisstjórnin ræður auðvitað ekki allri þróuninni. Alþjóðleg óvissa, hátt vaxtastig, aflabrestur og erfiðleikar í einstökum útflutningsgreinum hafa áhrif. En hlutverk stjórnvalda er einmitt að mæta mótvindi, ekki magna hann. Í stað þess að verja samkeppnishæfni atvinnulífsins hafa stjórnvöld boðað og innleitt skattahækkanir, stóraukið veiðigjöldin, aukið álögurnar á ferðaþjónustu og látið fjárfestingarverkefni bíða í hægvirku kerfi. Samhliða hefur verið varið miklum tíma í nefndir, stefnumótun, samráðsgáttir og ný stjórnsýsluverkefni. Undirbúningur fyrir aðlögunarviðræður? Nú á þjóðin að greiða atkvæði 29. ágúst um hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Verði niðurstaðan já þarf eflaust nýjar nefndir, fleiri sérfræðinga, fleiri verkefnastjóra, fleiri lögfræðinga, fleiri samhæfingarteymi og fleiri opinbera starfsmenn til að undirbúa allar aðlaganirnar. Kannski var „verðmætasköpunarhaustið“ allan tímann hugsað sem upphitun fyrir „aðlögunarviðræðuveturinn“. Velferðin verður ekki byggð á launaskrá ríkisins Við þurfum öflugt velferðarkerfi. Við þurfum góða heilbrigðisþjónustu, sterka skóla, öryggi og þjónustu við þá sem þurfa á samfélaginu að halda. En velferðin verður ekki byggð með því einu að fjölga fólki á launaskrá hins opinbera. Hún verður byggð með því að skapa skilyrði fyrir fólk og fyrirtæki til að fjárfesta, framleiða, flytja út og skapa störf. Með einfaldara regluverki, stöðugu skattaumhverfi, öflugum innviðum og stjórnvöldum sem skilja að einkaframtakið er ekki skattstofn heldur undirstaða lífskjaranna. Þegar 96% fjölgunar starfandi fólks er hjá hinu opinbera er það ekki merki um verðmætasköpun. Það er viðvörun um að framleiðslugrunnurinn sé að veikjast á meðan yfirbyggingin stækkar. Það sýnir að hagstjórn ríkisstjórnarinnar er ekki að skapa atvinnulífinu þau skilyrði sem það þarf. Þetta er ekki uppskera. Það er verið að éta útsæðið. Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar