Golf

DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bryson DeChambeau hélt að hann væri í öðru sæti eftir daginn en fékk tveggja högga refsingu.
Bryson DeChambeau hélt að hann væri í öðru sæti eftir daginn en fékk tveggja högga refsingu. Getty/Kate McShane

Bandaríski kylfingurinn Bryson DeChambeau fékk í kvöld tveggja högga víti eftir annan hring sinn á 154. Opna breska meistaramótinu í golfi, The Open. Honum var refsað fyrir að bæta legu sína í háu grasi fyrir annað högg sitt á fimmtu holu.

DeChambeau hafði komist einn í annað sætið á sjö höggum undir pari, einu höggi á eftir Lucas Herbert sem var í forystu, eftir að hafa leikið á 66 höggum, eða 4 höggum undir pari.

Grant Moir, framkvæmdastjóri reglumála hjá R&A, sagði í yfirlýsingu að DeChambeau hefði fengið tveggja högga víti „fyrir að bæta óviljandi svæðið fyrir fyrirhugaða sveiflu sína, þ.e.a.s. fyrirhugaða baksveiflu á 5. holu þegar hann lék annað högg sitt.“

Í yfirlýsingunni bættist við: „Bót á aðstæðum þýðir að breyta einu eða fleiri af þeim skilyrðum sem hafa áhrif á höggið þannig að leikmaðurinn öðlist hugsanlegt forskot fyrir höggið. Ég vil leggja áherslu á að þetta á við jafnvel þótt aðgerðin sé óviljandi, eins og var í tilfelli Brysons.“

Tveggja högga vítið breytti skori DeChambeau í 68 og færði hann niður í jafnt fimmta sæti á 5 höggum undir pari eftir 36 holur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×