Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Freyja Þórisdóttir skrifar 19. júlí 2026 11:56 Ríflega fjögur hundruð manns hafa misstu heimili sín í brunanum. Aðsend Lögregla í norsku borginni Drammen telur nú líklegast að slys hafi valdið stórbrunanum sem varð ríflega hundrað heimilum á svæðinu að bráð á dögunum. Rannsókn stendur þó enn yfir og eru eldsupptök ókunn.
Eldur geisaði stjórnlaust í meira en sólarhring frá því um hádegibilið á föstudaginn í útjarðri norsku borgarinnar Drammen. Norska ríkisútvarpið hafði í morgun eftir aðgerðarstjóra að svalt veður og væta hafi komið sér vel við slökkvistarfið en slökkvilið hefur nú stjórn á stöðunni þó að glæður logi enn víða. Enginn er grunaður um íkveikju af ásetningi sem stendur og þykir líklegast að upptök eldsins hafi verið slys, er fram kemur í umfjöllun norska ríkisútvarpsins. Talað er um að svokölluð sjálfsíkveikja gæti líka hafa orsakað brunann en þá hitnar efni nógu mikið til að það kvikni sjálfkrafa í því án utanaðkomandi íkveikjuvalds. Enginn hlotið skaða af Íbúum var gert að yfirgefa svæðið eftir að eldurinn braust út og fleiri en hundrað heimili eru brunnin til grunna. Engan hefur sakað samkvæmt norskum fjölmiðlum og jafnframt hafa engar tilkynningar borist um íbúa sem er saknað. Þó þurftu margir að yfirgefa heimili sín með litlum sem engum fyrirvara þegar eldurinn braust út um hádegisbil á föstudag. Margir höfðu því ekki um annað að velja en að skilja gæludýr sín eftir en staðfest er að nokkur hafi týnst eða drepist í brunanum. Borgarstjóri Drammen hefur opinberlega talað um stórbrunann sem hamfarir en ríflega fjögur hundruð manns dvöldu í nótt á rýmingarmiðstöð eða hjá vinum og ættingjum.
Noregur Tengdar fréttir Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Aðgerðastjóri lögreglu í Drammen segir fréttir af því að viðbragðsaðilar hafi náð tökum á eldinum sem logar í Krokstadelva séu ýktar. 18. júlí 2026 10:39 Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Fjöldi íbúða og heimila sem tapast hafa í stórbruna í Drammen í Noregi er kominn yfir hundrað. Arnar Jakobsson, sem búsettur hefur verið í Noregi síðastliðin tuttugu og sex ár, segist hafa mætt lögreglu- og slökkviliðsbíl um klukkan 15:35 síðdegis að staðartíma. „Þá leit ég upp í brekku og sá alelda hús,“ segir Arnar. 17. júlí 2026 21:48 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Sjá meira
Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Aðgerðastjóri lögreglu í Drammen segir fréttir af því að viðbragðsaðilar hafi náð tökum á eldinum sem logar í Krokstadelva séu ýktar. 18. júlí 2026 10:39
Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Fjöldi íbúða og heimila sem tapast hafa í stórbruna í Drammen í Noregi er kominn yfir hundrað. Arnar Jakobsson, sem búsettur hefur verið í Noregi síðastliðin tuttugu og sex ár, segist hafa mætt lögreglu- og slökkviliðsbíl um klukkan 15:35 síðdegis að staðartíma. „Þá leit ég upp í brekku og sá alelda hús,“ segir Arnar. 17. júlí 2026 21:48