Vonar að Modric haldi áfram Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. júlí 2026 12:01 Óvíst er hvað Luka Modric ákveður að gera. Justin Setterfield/Getty Images Slaven Bilic, nýráðinn landsliðsþjálfari Króatíu, vonar að Luka Modric haldi áfram að spila fyrir landsliðið.
Króatía féll úr leik í 32-liða úrslitum HM gegn Portúgal og Zlatko Dalic hætti sem landsliðsþjálfari eftir níu ára starf. Undir hans stjórn vann Króatía til silfurverðlauna á HM 2018 og bronsverðlauna á HM 2022. Bilic tók við starfinu og hélt sinn fyrsta blaðamannafund í gær. Þar tók hann skýrt fram að hann vonaðist til að sjá Modric spila undir sinni stjórn. Slaven Bilic hélt sinn fyrsta blaðamannafund eftir endurráðningu í gær. „Fyrsta skrefið er að koma starfsliðinu saman. Svo tala ég við leikmenn, það á sérstaklega við um Luka Modric,“ sagði Bilic um leikjahæsta landsliðsmann Króatíu frá upphafi. „Við vitum allir hver Luka er og hvað hann getur. Ákvörðunin er algjörlega hans, því hann skiptir svo miklu máli fyrir króatískan fótbolta. Hann er miklu meira en bara besti landsliðsmaður í sögu Króatíu.“ Bilic hefur þjálfað króatíska landsliðið áður og því unnið með Modric áður. Þeir hafa haldið sambandi síðan Bilic hætti árið 2012. „Ég talaði síðast við hann fyrir svona ári síðan. Eitt af mínum fyrstu verkum verður að tala við hann aftur. Auðvitað vona ég að hann haldi áfram en á endanum verður þetta hans ákvörðun,“ sagði Bilic en hans fyrsti leikur við stjórnvölinn verður gegn Tékklandi í A-deild Þjóðadeildarinnar 26. september. Modric hefur ekki tjáð sig um framtíð sína í fótbolta eftir að HM lauk en hann verður 41 árs þann 9. september næstkomandi.
HM 2026 í fótbolta Ítalski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira