„Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Árni Gísli Magnússon skrifar 19. júlí 2026 20:06 Erin Flurey kom Akureyringum á bragðið gegn Eyjakonum. vísir/diego „Mér líður frábærlega. Það er frábært að vera komnar á sigurbraut aftur eftir erfiðan síðasta leik, 3-2 tap, svo það er flott að ná í 2-1 sigur í dag.“, sagði Erin Flurey, leikmaður Þór/KA, eftir 2-1 sigur gegn ÍBV þar sem hún skoraði fyrsta mark leiksins og átti góðan leik.
Þór/KA pressaði ÍBV liðið stíft frá upphafi og segir Erin það hafa verið planið. „Leikplanið okkar var í raun bara að koma með meiri orku en þær frá upphafi og mér finnst við hafa gert það af því við vorum allar að reyna að pressa og ná boltanum til baka og vorum alltaf til staðar fyrir hvor aðra. Að koma með svona mikla orku strax frá upphafi held ég að hjálpi okkur og þessar fyrstu fimm til tíu mínútur gáfu okkur mikið.“ Erin er líkamlega sterkur leikmaður og vann ófá návígin í dag. „Mér finnst þetta mjög svipað í gegnum alla deildina, þetta er frekar líkamalega sterk deild, þetta er frábrugðið Bandaríkjunum, ég get sagt það, þannig mér finnst þetta vera mikið líkamleg barátta í hverjum leik og það var ekkert öðruvísi í dag.“ Erin skoraði fyrsta mark leiksins en erfitt var að sjá hvort hún eða Bríet Jóhannsdóttir hafi skoraði seinna markið en Erin gat upplýst um réttan markaskorara. „Það var klárlega Bríet. Hún er frábær í að koma sér í teiginn og skora þessi mörk af harðfylgi, hún gerði það líka gegn Stjörnunni um daginn þannig hrós á hana fyrir að klára alltaf hlaupin inn í teiginn. Þetta var klárlega hún sem skoraði og bara frábært fyrir hana. Hún tekur þessi hlaup á bak við og það virkar fyrir hana. Við skorum tvö mörk í dag og tvö mörk í síðasta leik þannig þetta eru tveir mjög góðir leikir fyrir okkur tvær.“ Langt er í næsta leik sem er gegn Breiðablik á útivelli eftir tíu daga. „Ég ætla klárlega að gefa líkamanum smá pásu en mæta áfram á æfingar og í ræktina og svoleiðis til að halda fótunum ferskum. Ég er spennt fyrir næsta leik en pirrandi að það sé eftir tíu daga en spennt að mæta þar með sömu orku og við gerðum í dag.“
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA ÍBV Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Fram - KR | Hörð barátta um annað sætið Íslenski boltinn Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn Fleiri fréttir „Við ætlum að vinna rest“ Fram - KR | Hörð barátta um annað sætið Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Sjá meira