Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Jón Þór Stefánsson skrifar 21. júlí 2026 16:58 Icelandair skilaði mettekjum. Vísir/Anton Icelandair tapaði fjórum milljörðum á öðrum ársfjórðungi en á sama tíma í fyrra nam hagnaður eftir skatta 1,7 milljarði króna.
Þrátt fyrir tapið skilaði félagið inn mestu tekjum,61,4 milljörðum króna, sem það hefur gert á öðrum ársfjórðungi. EBIT var neikvætt um 3,7 milljarða króna, samanborið við jákvætt EBIT um 102,9 milljónir króna á fyrra ári, aðallega vegna hækkunar eldsneytiskostnaðar Í tilkynningu segir að undirliggjandi rekstrarbati hafi verið án áhrifa hækkunar eldsneytiskostnaðar, sem jókst um níu milljarða króna milli ára, eða um 5,1 milljarð króna að teknu tilliti til áhrifa eldsneytisvarna Þar segir einnig að horfur fyrir þriðja ársfjórðung séu góðar, og að búist sé við EBIT rekstrarbata og met einingatekjum „Rekstrarumhverfið var krefjandi á öðrum ársfjórðungi vegna mikillar hækkunar eldsneytisverðs. Við náðum samt sem áður góðum árangri á mörgum sviðum og var afkoman í takt við afkomuspá okkar fyrir fjórðunginn. Við skiluðum met tekjum og ef hækkun eldsneytiskostnaðar er tekin út fyrir sviga náðum við undirliggjandi EBIT rekstrarbata á milli ára. Tekjur á hvern seldan sætiskílómetra hækkuðu og var sætanýting, ásamt stundvísi, áfram góð. Til að bregðast við krefjandi aðstæðum höfum við aðlagað framboð, hækkað fargjöld, lagt mikla áherslu á kostnaðaraðhald og ákveðið að hætta rekstri Boeing 757 flugvéla fyrr en áætlað var,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair. „Tekjuhorfur á þriðja ársfjórðungi eru góðar og gerum við ráð fyrir að einingatekjur verði þær hæstu í sögu félagsins. Eftirspurn er mikil til og frá Íslandi, og nær hápunkti til Íslands í kringum sólmyrkvann í ágúst. Þá gerum við ráð fyrir að EBIT í þriðja ársfjórðungi muni batna milli ára.“ Þá segir hann að félagið muni halda áfram að endurnýja flugflota sinn, innan skamms sé von á nýjum flugvélum sem muni opna ný tækifæri og styrkja leiðakerfið. „Til þess að nýta þessi tækifæri til fulls er nauðsynlegt að félagið sé samkeppnishæft á öllum sviðum rekstrarins. Hluti af því er að tryggja að nýir kjarasamningar styðji við langtímaáætlanir félagsins á sama tíma og við höldum áfram að bjóða upp á eftirsótt flugstörf á Íslandi og góðar starfsaðstæður. Einnig er mikilvægt að áform okkar um að ná betri stjórn á árstíðasveiflunni í rekstrinum gangi eftir. Allt miðar þetta að því að efla tengimiðstöðina í Keflavík og starfsemi okkar á Íslandi,“ segir Bogi. „Fjárhagsstaða félagsins er sterk sem gerir okkur kleift að bregðast við síbreytilegu rekstrarumhverfi og á sama tíma fjárfesta í framtíðarvexti. Ég vil þakka viðskiptavinum okkar fyrir traustið og starfsfólki okkar fyrir frábær störf. Þau eru grunnurinn að árangri félagsins.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Icelandair Flug Ferðaþjónusta Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira