Ali G snýr aftur Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. júlí 2026 10:13 Ali G kemur aftur í bíó í haust. Gervitöffarinn Ali G sem varð frægur um aldamótin snýr aftur í framhaldsmyndinni Ali G: Who Iz I? í oktber. Fyrri myndin, Ali G In Da House, kom út 2002 og var fyrsta stóra kvikmyndahlutverk Sacha Barons Cohen.
Kvikmyndaverið Amazon MGM Studios hefur staðfest að kvikmyndin Ali G: Who Iz I? verði frumsýnd í Bandaríkjunum þann 23. október. Undanfarið hafa borist fregnir af því að myndin væri í bígerð og sést til Barons Cohen við tökur á hinum ýmsu stöðum. „Þau eru loksins búin að gera heimildarmynd um mig. Og það er ekki þetta kjaftæði um mörgæsirnar. Þessi er með að minnsta kosti tvöfalt meira dýrakynlíf. Ali G: Who Iz I? kemur til ykkar 23/10 hvað sem það þýðir,“ sagði Ali G svo sjálfur í Instagram-færslu. View this post on Instagram A post shared by Ali G (@official.ali.g) Ali G er fyrsti grínkarakter Sacha Baron Cohen sem sló í gegn. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið í sjónvarpsþáttunum Comedy Nation, Live from the Lighthouse og The 11 O'Clock Show árið 1998 áður en hann fékk sinn eigin þátt Da Ali G Show frá 2000 til 2004. Kvikmyndin Ali G In Da House kom út 2002 og síðan hefur Cohen gefið út myndirnar Borat (2006), Brüno (2009), The Dictator (2012) og Borat Subsequent Moviefilm (2020).
Bíó og sjónvarp Hollywood Bretland Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Fleiri fréttir Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira