„Við eigum harma að hefna“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. júlí 2026 14:15 Sigurður Heiðar Höskuldsson hefur um nóg að snúast í leikmannamálum þessa dagana. Vísir / Hulda Margrét „Það er alltaf sama spennan,“ segir Sigurður Höskuldsson þjálfari Þórs fyrir heimsókn liðsins á nýjan heimavöll KA í kvöld. Þórsarar ætla að hefa fyrir tapið í fyrri umferðinni en mæta laskaðir til leiks í Akureyrarslaginn.
Líkt og í fyrri leik liðanna, þegar Þór vígði nýjan heimavöll, ákvað KA að nýta tækifærið í kvöld og vígja nýja Greifavöllinn formlega. Þórsarar eiga harma að hefna úr þeim leik en þá skoraði Hallgrímur Mar Steingrímsson sigurmarkið í 0-1 sigri KA. Óneitanlega þarf Þór líka á sigri að halda í kvöld því liðið er í neðsta sæti deildarinnar, þremur stigum frá KA. „Okkur fannst við eiga meira skilið en við fengum úr þeim leik, þegar KA-menn fengu víti á lokamínútunum. Þannig að við eigum harma að hefna og það situr alveg enn þá í mönnum, þetta tap, og ég vona bara að það sitji mikið í mönnum. Við þurfum að hefna fyrir þetta, það er klárt.“ Eftir að hafa spilað einn leik með Þór, í 2-1 sigri gegn Víkingi um síðustu helgi, er Aron Einar Gunnarsson horfinn á braut á ný og búinn að semja við Katar SC. „Þetta var vitað, að þetta gæti byrjað og endað með litlum fyrirvara. Við veltum þessu ekkert mikið fyrir okkur, þetta er bara einn leikmaður en við erum heilt lið og heill klúbbur. Þetta snertir okkur ekkert sérstaklega mikið. Hann kom í einn leik og ég vona að liðið hafi lært af því, að hann hafi smitað einhverju inn í leikmannahópinn sem situr eftir.“ Aron Einar er ekki sá eini sem Þórsarar munu sakna síðan í síðasta leik. Ágúst Eðvald Hlynsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson fengu gul spjöld gegn Víkingi og verða í leikbanni í kvöld auk þess sem Christian Greko Jakobsen meiddist í leiknum gegn Víkingi. Þá eru Atli Sigurjónsson, Ragnar Óli Ragnarsson og Ásbjörn Líndal Arnarsson einnig að glíma við meiðsli. „Já það eru alveg nokkur spurningamerki hjá okkur fyrir kvöldið. Ég leyfi þeim spurningamerkjum bara að lifa í kosmósinu,“ sagði Sigurður og vildi ekki gefa neinar nánari upplýsingar um ástand meiddra leikmanna liðsins. Þórsarar hafa þurft að styrkja hópinn upp á síðkastið, enda í bullandi fallbaráttu. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson kom öflugur inn í sinn fyrsta leik fyrir félagið og skoraði í sigrinum gegn Víkingi. Síðan eru Þórsarar búnir að sækja tvo framherja, Þorra Ingólfsson og Víctor Bertomeu. „Þeir verða báðir í hópnum í kvöld, það er klárt. Hafa komið hrikalega vel inn og það er skemmtileg ára í kringum þá báða, á mismunandi hátt. Einn er ungur og graður, annar eldri og tilbúinn í ævintýri, veit nákvæmlega hvers er ætlast af honum. Þannig að við erum mjög spenntir fyrir þessum leikmönnum og spenntir að sjá hvernig þeir koma inn í þetta í kvöld. Þetta er alvöru frumraun, að mæta í svona slag.“ Er eitthvað meira á leiðinni? „Jájá, við erum að skoða okkur um og þurfum líka að bregðast við því að Aron verði ekki lengur. Eitt eða tvö nöfn finnst mér líklegt að komi inn fyrir gluggalok og vonandi bara strax í þessari viku.“
Besta deild karla Þór Akureyri KA Mest lesið Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Fótbolti Sjóðheit Ída Marín kveður FH Íslenski boltinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Enski boltinn Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Fótbolti Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Íslenski boltinn Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Enski boltinn Þingkonan hlaut EM-brons eftir mikla spennu Sport Fram - Stjarnan | Geta jafnað KR að stigum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fram - Stjarnan | Geta jafnað KR að stigum Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Fastir í þriðja gír og bitlausir Þór/KA fær til sín leikmann frá Bandaríkjunum „Þetta eru leikirnir þar sem bestu leikmennirnir vilja vera bestir í“ „Ísland breytti lífi mínu“ Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Sjá meira