Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar 28. júlí 2026 06:02 Veganismi sem hugmyndafræði er í raun fallegt fyrirbæri. Kjarninn er að draga eins og hægt er úr skaða og þjáningum dýra. Mörgum finnst veganismi þó ganga of langt frá norminu og telja skynsamlegra að finna einhvern milliveg. En hér er hugmynd sem gæti lyft nokkrum augabrúnum: Við erum öll vegan nú þegar. Já, líka þú. Lof mér að útskýra. Komdu með mér í þrjár stuttar hugartilraunir sem gætu víkkað sjóndeildarhringinn. Hugartilraun 1: Enginn kemst hjá því að valda skaða Veganismi snýst í grunninn um að valda dýrum sem minnstum skaða og þjáningu. Spendýr eru þar efst í huga flestra, enda erum við mannfólk eitt þeirra. En fiskar, fuglar, froskdýr, skriðdýr, skordýr, og önnur dýr eru auðvitað líka dýr og hugmyndin er að taka tillit til þeirra allra. Flest þeirra sem kalla sig vegan leggja sig fram um að neyta engra dýraafurða, hvort sem um er að ræða mat, snyrtivöru, fatnað, eða annað. Ástæðan er einföld: Þau vilja ekki styðja við misnotkun dýra. En hér vandast málið. Sannleikurinn er sá að enginn kemst alveg hjá því að valda dýrum skaða og þjáningu. Ekki einu sinni þau sem leggja hvað mest á sig til að forðast það. Við ræktun korns, grænmetis, ávaxta, bauna og annarra plantna verður óhjákvæmilega tjón á dýralífi. Smáspendýr, fuglar, skriðdýr, froskdýr og önnur dýr farast við jarðvinnslu, uppskeru, notkun varnarefna og breytingar á búsvæðum. Áætlanir um fjöldann eru mjög óvissar, en sumar benda til þess að milljarðar villtra dýra farist af þessum sökum árlega. Þar á meðal eru mýs, rottur og önnur smáspendýr, jarðverpandi fuglar og ungar þeirra, auk skriðdýra og froskdýra. Billjónir, jafnvel billjarðar skordýra og annarra hryggleysingja farast einnig árlega þegar eitrað er fyrir þeim í nafni uppskerunnar. Fólk slasast og deyr einnig við störf í landbúnaði víða um heim. Alþjóðavinnumálastofnunin hefur áætlað að að minnsta kosti 200 þúsund landbúnaðarstarfmenn látist í vinnuslysum á hverju ári en vangreining- og skráning er mikil í landbúnaði og má reikna með að rauntölur séu jafnvel enn hærri. Allt sem við borðum á sér sögu og sú saga er sjaldnast algjörlega laus við þjáningu og dauða dýra og manna. Það er óþægileg staðreynd, en mikilvæg. Skiptir þá einhverju máli hvað við borðum, fyrst þjáning og dauði leynast einhversstaðar á bak við alla matvælaframleiðslu? Eða eigum við bara að borða klaka og drekka vatn? Eða kannski svelta? Eða fara til baka í frumskóginn og lifa á því sem vex villt? Auðvitað ekki. Sjáum nú til. Við búum í nútímasamfélagi og þurfum að borða til að lifa og þannig er nú það. En þótt enginn valkostur sé fullkomlega saklaus er gríðarlegur munur á áhrifunum eftir því hvað við veljum. Við höfum val. Við getum ákveðið að horfa fram hjá þjáningunni eða horfst í augu við staðreyndina að það er þjáning á bak við allar matvörur og byrjað að kynna okkur hvaða möguleika við eigum til að draga úr henni. Og þar held ég að flest okkar eigum meira sameiginlegt en við gerum okkur grein fyrir. Það vill nefnilega enginn pína dýr. Að minnsta kosti ekki fólk sem gengur heilt til skógar. Flest drögum við einhverja línu. Sum velja að borða ekki gæludýr eins og hunda og ketti. Önnur kjósa að borða ekki hvali, kanínur og hesta. Sum velja að sniðganga svín og hænur. Sum borða fisk en ekki spendýr. Sum borða egg og mjólkurafurðir en sleppa kjöti. Önnur forðast allar dýraafurðir. Jafnvel innan veganisma eru skiptar skoðanir um hunang, garðhænuegg, ull, notaðar leðurvörur og fleira. Við drögum öll línu. Við drögum hana bara á mismunandi stað. Og þar liggur kjarninn. Þegar ég segi að við séum öll vegan á ég ekki við að allir lifi vegan lífsstíl í hefðbundnum skilningi. Augljóslega ekki. Ég á við að flest okkar deila siðferðilegum kjarna veganisma að einhverju marki: Við viljum ekki valda dýrum óþarfa þjáningu. Við reynum flest, hvert á sinn hátt, að valda eins litlum skaða og við teljum okkur geta. Við erum hinsvegar ekki alltaf sammála um hvað telst „óþarfi“. Og við treystum okkur mislangt. Hugartilraun 2: Vegan skalinn Það getur hjálpað að hugsa um þetta sem skala. Á öðrum endanum er fólk sem veltir aldrei fyrir sér áhrifum neyslu sinnar á dýr, fólk eða náttúru. Það kaupir það sem því dettur í hug, borðar það sem því sýnist og spyr ekki hver hafi í raun greitt verðið. Umhverfisáhrifin látum við liggja milli hluta hér. Þau eru efni í aðra grein. Á hinum endanum er fólk sem gerir allt sem það getur til að lágmarka skaða. Það velur fæðu, fatnað, snyrtivörur og aðrar vörur með dýravelferð í huga, forðast dýraafurðir eftir fremsta megni, reynir að minnka sóun og hugsar um afleiðingar þess sem það kaupir. Sum rækta jafnvel eigin mat án skordýraeiturs og gera ráðstafanir til að fæla smádýr af ræktarlandi áður en jarðvinna hefst. Flest erum við einhvers staðar þarna á milli. Líklega myndu þó flest vilja færast nær síðari endanum, jafnvel þótt við næðum honum aldrei fullkomlega. Við myndum að minnsta kosti telja það óheilbrigt ef einhver hefði einlægan áhuga á að færa sig í hina áttina. En það er einmitt eitt það merkilegasta við okkur mannfólkið. Við getum endurmetið eigin hegðun. Við getum fært línuna okkar. Ekki aðeins sem tegund, þjóð eða samfélag, heldur sem einstaklingar. Hvert okkar hefur sína línu og við getum fært hana hvenær sem okkur sýnist. Þar að auki höfum við óvenjumikið vald sem einstaklingar á þessu sviði. Þegar kemur að stríðum, mannréttindum og ýmsum frelsisbaráttum þurfum við oft að reiða okkur á stjórnvöld, stofnanir og stórfyrirtæki til að knýja fram breytingar. En þegar það kemur að dýravelferð, getum við beinlínis haft áhrif í hvert sinn sem við tökum upp veskið. Hugartilraun 3: Við getum fært línuna Gefum okkur að úrval jurtafæðis í matvöruverslunum hryndi og við þyrftum að reiða okkur á dýraafurðir til að fá þá næringu sem nauðsynleg er til að halda góða heilsu. Flest sem kalla sig vegan myndu að öllum líkindum færa línuna sína og borða dýraafurðir, að minnsta kosti þangað til úrvalið batnaði á ný. Veganismi snýst nefnilega ekki um að deyja fyrir hreinleika hugmyndarinnar. Hann snýst um að gera það besta sem hægt er við þær aðstæður sem við búum við. Gefum okkur síðan hið gagnstæða. Að matvöruverslanir byðu upp á ríkulegt úrval fjölbreyttrar jurtafæðu. Að við hefðum öll greiðan aðgang að uppskriftum, upplýsingum og sífellt fleiri valkostum. Að við gætum fengið þá næringu sem við þyrftum án dýraafurða. Gefum okkur jafnframt að við þurftum hvorki að fórna heilsu, lífsgæðum né bragðupplifun og gætum jafnvel bætt þetta allt í leiðinni. Þá er kannski vert að spyrja sig hvort línan okkar þurfi að liggja nákvæmlega þar sem hún liggur í dag. Kannski getum við fært hana aðeins. Kannski með því að sleppa kjöti oftar. Kannski með því að prófa plöntumjólk. Kannski með því að velja vegan máltíð í hádeginu. Kannski með því að skoða betur hvað við kaupum, hvað við styðjum og hvaða þjáningu við teljum raunverulega nauðsynlega. Þetta þarf ekki að hefjast með stórri yfirlýsingu. Það þarf ekki nýja sjálfsmynd, nýjan lífsstíl eða dramatíska tilkynningu í fjölskylduboðinu. Það getur byrjað á einfaldri spurningu: Get ég valdið aðeins minni skaða í dag en í gær? Því kannski er spurningin nefnilega ekki hvort við séum vegan eða ekki vegan. Kannski er hún einfaldlega þessi: Í hvaða átt vil ég færa línuna mína? Eða jafnvel: Get ég staðsett línuna þannig að hún endurspegli gildi mín um samkennd, manngæsku og vilja til að draga úr óþarfa þjáningu dýra og manna? Og að lokum:Get ég látið veskið fylgja sannfæringunni? Höfundur situr í stjórn Samtaka um dýravelferð á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vegan Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun