Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar 29. júlí 2026 16:02 Náttúruverndarstofnun telur að forsendur núverandi fyrirkomulags refaveiða séu í raun brostnar, meðal annars vegna þess að fáar formlegar tilkynningar um tjón af völdum refs hafi borist. Þetta er svo merkileg rökfræði að rétt er að beita henni á stofnunina sjálfa. Um leið og Náttúruverndarstofnun vísar til fárra tjónatilkynninga vegna refs viðurkennir hún að skráning tjóna hafi árum saman verið verulega ábótavant. Með öðrum orðum: Upplýsingakerfið hefur ekki virkað, gögnin eru ófullnægjandi og yfirsýnin takmörkuð. Samt er skorturinn á upplýsingum notaður til að draga þá ályktun að forsendur aðgerðanna séu brostnar. Það er ekki vísindaleg niðurstaða. Það er stjórnsýsluleg kollsteypa. Fjarvera skráningar felur ekki sjálfkrafa í sér að ekki hafi orðið tjón. Hún getur allt eins þýtt að bændur, æðarbændur og aðrir tjónþolar séu hættir að tilkynna vegna þess að þeir treysta ekki kerfinu, þekkja ekki tilkynningarleiðina eða sjá engan tilgang í að skrá tjón sem engin viðbrögð fylgja. Tilkynningafjöldi er ekki stofnmat og hann er heldur ekk tjónamat. Hann segir heldur ekkert einn og sér um áhrif refs á fuglalíf, búfé eða viðkvæm vistkerfi. Og hann er alls ekki vísindaleg sönnun þess að refaveiðar séu orðnar óþarfar. Þarna ber Náttúrufræðistofnun einnig ábyrgð. Hennar hlutverk er að leggja fram rannsóknir og upplýsingar um stærð refastofnsins, þróun hans, dreifingu og áhrif á vistkerfið. Náttúruverndarstofnun á síðan að byggja ákvarðanir sínar á þeirri þekkingu. Lamb, enn á lífi, sem refur var í. Myndin var tekin í Eyjafirði 20. júlí 2026. En ef gögnin um tjón, áhrif veiða og afleiðingar þess að draga úr þeim eru ófullnægjandi, getur niðurstaðan ekki verið sú að veiðarnar séu óþarfar. Hún segir okkur hins vegar að stjórnvöld hafi ekki unnið heimavinnuna sína. Verra er að fækkun skráðra tjóna kann einmitt að vera afleiðing þess að refaveiðar hafi skilað árangri. Það væri stjórnsýsla af furðulegustu gerð að stöðva aðgerð vegna þess að hún virkar. Með sömu speki mætti leggja niður slökkviliðið þegar húsbrunum fækkar, hætta snjóflóðavörnum þegar enginn hefur farist um hríð og leggja niður björgunarsveitir þegar færri drukkna. Áður en opinberum stuðningi við refaveiðar er hætt eða hann skorinn niður þurfa stofnanirnar að leggja fram gögn sem standast skoðun. Hversu stór er refastofninn? Hvernig hefur hann þróast og dreifst? Hvert er raunverulegt tjón? Hver eru áhrif refs á fuglalíf, búfé og viðkvæm vistkerfi? Hvaða áhrif hafa veiðarnar haft? Og hvað gerist ef dregið verður verulega úr þeim? Ef stofnanirnar geta ekki svarað þessum spurningum er ekki hægt að nota þekkingarskortinn sem rök fyrir niðurskurði. Opinber stofnun getur ekki látið hjá líða að afla upplýsinga og síðan notað fjarveru upplýsinganna sem sönnun þess að vandinn sé ekki til. Ef sú röksemd á að gilda, skulum við að minnsta kosti vera sjálfum okkur samkvæm. Fáar upplýsingar, ófullnægjandi skráning og óljós niðurstaða hljóta þá að vera rök fyrir því að draga úr fjárveitingum til þeirra stofnana sem áttu að afla upplýsinganna og reka kerfið. Það væri auðvitað fráleit niðurstaða. En hún er ekki fráleitari en sú niðurstaða að hætta stuðningi við refaveiðar vegna þess að fáir nenntu að fylla út eyðublað í kerfi sem stofnunin sjálf viðurkennir að hafi ekki virkað. Höfundur er forstjóri Bláa hagkerfisins ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dýr Skotveiði Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar