Vozinha berst fyrir því að halda nafninu hjá nýju liði Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. júlí 2026 16:30 Hinn fertugi Vozinha átti margar eftirminnilegar markvörslur á HM. Buda Mendes/Getty Images Markmaðurinn Vozinha, helsta hetja Grænhöfðaeyja á HM í sumar, er lentur í smá vandræðum hjá nýju liði.
Eftir að hafa slegið í gegn á HM ákvað Vozinha að gera sex mánaða samning við Colo-Colo í úrvalsdeild Síle. Vandamálið er hins vegar að í Síle mega leikmenn ekki setja gælunafn aftan á treyjur, eingöngu eftirnafnið er leyfilegt. Vozinha, sem heitir fullu nafni Josimar José Évora Dias, berst nú fyrir því að fá undanþágu frá reglunum. Gælunafnið hefur fylgt honum alveg síðan hann var ungur drengur. „Vozinha“ þýðir „litla amman“ á portúgölsku. Gælunafnið byrjaði í ljótu gríni og vísar til þess að þegar Vozinha var ungur fór hann oft grátandi af fótboltavellinum þegar hann tapaði, heim til ömmu sinnar og afa sem hann ólst upp hjá. Vozinha hefur eignað sér gælunafnið, gert gott úr því og vonast til að mega halda því áfram. „Við erum með þetta vandamál en ég ræddi við ANFP [Knattspyrnusamband Síle] og þeir sýndu góðvilja. Það er forsetaráðsfundur sem þegar hefur verið boðaður á föstudag. Ég hef rætt við nokkra forseta annarra félaga og þeir hafa sýnt mér jákvæðni sína í garð þess að hann fái að spila með nafnið Vozinha, í ljósi þess að hann gerði það á mikilvægasta viðburði heims,“ sagði Aníbal Mosa, forseti Colo-Colo, við fréttamenn í dag.
Síle HM 2026 í fótbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira