Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. júlí 2026 13:29 Todd Boehly tilkynnti sjálfviljugur um brotin þegar hann tók við eignarhaldi Chelsea árið 2022. Visionhaus/Getty Images Chelsea slapp við stigafrádrátt en hefur verið sektað um tíu milljónir punda fyrir 74 brot á fjárhagsreglum enska knattspyrnusambandsins.
Chelsea var upphaflega gefin sex stiga refsing, sem hefði þýtt að liðið myndi byrja næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni með neikvæð sex stig, en dómnum var breytt eftir áfrýjun. Brotin áttu sér stað frá 2009 til 2022, þegar Chelsea var í eigu rússneska ólígarkans Roman Abramovich. Hann dældi peningum inn í félagið með ólöglegum leiðum en hraktist úr eignarhaldi Chelsea eftir innrás Rússlands í Úkraínu árið 2022. Þegar BlueCo, undir forystu Todd Boehly, keypti Chelsea árið 2022 tilkynnti félagið sjálft um brotin til enska knattspyrnusambandsins. Þess vegna slapp félagið við stigafrádrátt. Roman Abramovich var stórtækur á félagaskiptamarkaðnum þegar hann átti Chelsea. Alex Livesey - Danehouse/Getty Images UEFA hefur nú þegar sektað Chelsea í júlí 2023 um 8,6 miljónir punda fyrir sömu brot. Alls hefur Chelsea því greitt um 18,6 milljónir punda í sektir vegna þessa máls. Í öðru aðskildu máli var Chelsea sektað um 10 milljónir punda í mars síðastliðnum fyrir brot á fjárhagsreglum sem áttu sér einnig stað í eigendatíð Abramovich. Þau brot snerust aðallega um ólöglegar greiðslur til umboðsmanna. Tugir milljóna punda streymdu út úr félaginu, meðal annars til umboðsmanna Eden Hazard og þjálfarans Antonio Conte, án þess að greint væri frá því.
Mest lesið Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Íslenski boltinn Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Fótbolti Hvað er Onana að gera? Fótbolti Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Íslenski boltinn Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Fótbolti Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Íslenski boltinn „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Sjá meira