„Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2026 19:33 Belgíska kraftlyftingakonan Sonita Muluh er hér að undirbúa þessa afdrifaríku lyftu sína. Youtube Kraftlyftingakonunni Sonitu Muluh tókst ekki vel upp á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum í sumar en nú lítur út fyrir að starfsmaður keppninnar hafi viljandi eyðilagt fyrir henni í einni lyftunni.
Belgíska kraftlyftingakonan Sonita Muluh vann gull í 84 kílóa flokki á heimsmeistaramótinu árið 2024 og á að baki marga stóra alþjóðlega sigra. En henni gekk ekki jafn vel á heimsmeistaramótinu í Litháen fyrr í sumar. Henni mistókust allar þrjár tilraunir sínar í hnébeygju. Í síðustu tilraun sinni ætlaði hún að taka 334 kíló í hnébeygju, en lóðin á annarri hlið stangarinnar rákust í hné eins aðstoðarmannsins. Atvikið truflaði Muluh, sem mistókst hnébeygjan. View this post on Instagram A post shared by SportExpressen.se (@sportexpressen) Þjálfari Muluh skoraði á dómarana að leyfa henni að gera aðra tilraun en dómararnir sáu ekki atvikið og gullið rann Muluh úr greipum. Nokkru eftir HM gerðist eitthvað óvænt sem hefur hrist upp í kraftlyftingaheiminum. Bandaríski kraftlyftingamaðurinn Joe Sullivan greindi atvikið í myndbandi og þá birtist starfsmaður mótsins í athugasemdakerfinu. Ernestas Kusinas, eins og hann heitir, útskýrði hvers vegna lóðin rákust í hnéð á honum. „Verst fyrir ykkur, hálfvitarnir ykkar. Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi af því að ég hata ykkur, helvítis skíthælarnir ykkar,“ skrifaði Kusinas. View this post on Instagram A post shared by Sportbladet (@sportbladet) Muluh er brugðið vegna atviksins en lyftuna má sjá hér fyrir ofan. „Ég hef orðið fyrir rasisma á marga mismunandi vegu, en aldrei á þennan hátt,“ skrifar kraftlyftingakonan á Facebook. Fyrst varði hún starfsmanninn þar sem hún taldi að um heiðarleg mistök hefði verið að ræða. „Að lesa þetta núna frá sama manni er einfaldlega átakanlegt,“ skrifar Muluh. Margar tilfinningar fara um líkama hennar. „Ég er reið. Ég hef átt í miklum erfiðleikum með svefn,“ sagði Muluh við belgíska fjölmiðilinn HLN. Rasíski starfsmaðurinn Ernestas Kusinas hefur nú verið dæmdur í lífstíðarbann af litháíska kraftlyftingasambandinu. Sambandið mun einnig endurskoða verklagsreglur sínar og herða kröfur til þeirra sem vilja taka þátt í mótum. Alþjóðakraftlyftingasambandið, IPF, hefur einnig tjáð sig. „Rasismi, mismunun og hatur eiga engan stað í íþróttinni okkar,“ skrifar IPF. Eftir atvikið hefur einnig komið í ljós að Kusinas hefur tengsl við nasisma á Facebook-prófílnum sínum. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=NUDhY3CVGPo">watch on YouTube</a>
Kraftlyftingar Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Sjá meira