Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 3. ágúst 2026 11:16 Einu sinni þótti það til vitnis um góða mannasiði að segja satt og fólk komst almennt ekki upp með að ljúga. Ekki það að fólk hafi ekki logið hér áður fyrr, en þegar fólk var staðið að lygi fylgdi því skömm og álitshnekkir. Traust glataðist og fólk þurfti að svara fyrir orð sín. Í dag finnst mér hins vegar eins og sannleikurinn hafi verið gjaldfelldur. Samfélagsmiðlar hafa gjörbreytt leiknum og í dag flæðir um samfélagið aragrúi upplýsinga, rangra sem réttra. Algóritmar miðlanna ýta síðan fólki inn í bergmálshella þar sem sömu skoðanirnar eru endurteknar aftur og aftur. Með aukinni pólitískri skautun og uppgangi öfgaafla skiptir sannleikurinn sífellt minna máli. Það nægir að endurtaka sömu fullyrðinguna nógu oft þar til fólk fer að efast um það sem áður þótti augljóst. Svart verður hvítt og hvítt verður svart. Fólk trúir því sem fellur að eigin skoðunum og hafnar frekar því sem fær það til að efast. Bandaríkin eru okkur víti til varnaðar. Þar er pólitísk skautun orðin svo mikil að stórir hópar eru ekki lengur sammála um grundvallarstaðreyndir. Þjóð sem eitt sinn var fyrirmynd margra vestrænna ríkja einkennist nú af skautun og tortryggni. Við Íslendingar ættum í raun að vita vel að varast ber bæði fagurgala og hræðsluáróður. Þegar EES-samningurinn var til umræðu lá samningurinn sjálfur fyrir. Þjóðin gat séð skuldbindingarnar, réttindin og ávinninginn. Samt var haldið á lofti hræðsluáróðri um að Ísland myndi missa fullveldið, fiskimiðin og sjálfstæði sitt. Í dag eru hins vegar flestir sammála um að EES-samningurinn hafi verið eitt farsælasta skref sem Ísland hefur stigið. Fyrir bankahrunið var okkur sagt að íslenskir bankamenn væru öðrum fremri og að íslenska fjármálakerfið væri einstakt undur. Fjölmiðlar endurtóku það, stjórnmálamenn og forseti landsins töluðu það upp. Síðan kom sannleikurinn og hrunið. Almenningur reis upp og barði búsáhöld við Alþingi og ríkisstjórnin féll. Við borguðum skuldina við sannleikann með kerfishruni og þúsundir Íslendinga misstu heimili sín. Í apríl 2016 birtust síðan Panamaskjölin. Í viðtali sem sýnt var í Kastljósi svaraði þáverandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrst með óljósum hætti þegar hann var spurður um tengsl sín við erlend félög. Þegar gengið var á hann varðandi Wintris, aflandsfélag í eigu eiginkonu hans, brást hann illa við og gekk út úr viðtalinu. Daginn eftir fylltu Íslendingar Austurvöll og skömmu síðar varð hann að víkja úr embætti. Aftur hafði lygi skapað skuld við sannleikann og almenningur knúði fram greiðslu hennar. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst sjáum við líka aukna skautun, harða orðræðu, persónuárásir og níð, með svipuðum hætti og þróast hefur í Bandaríkjunum. Alltof oft víkja staðreyndir fyrir fullyrðingum. Andstæðingar viðræðna fullyrða mikið um hina ýmsu ókosti sem væntanlegur samningur muni fela í sér, eins og niðurstaðan liggi þegar fyrir og í raun sé ekkert eftir að semja. Allt sé vitað fyrirfram. Samt er einn sannleikur sem enginn ætti að geta deilt um: 29. ágúst verður ekki kosið um aðild að Evrópusambandinu. Kosið verður um hvort ljúka eigi viðræðunum svo þjóðin geti loksins séð hvað raunverulega stendur til boða og hverjir raunverulegir kostir og gallar eru. Þá vaknar eðlileg spurning: Af hverju telja 27 Evrópuríki hagsmunum sínum betur borgið innan Evrópusambandsins og hvers vegna sækjast tíu önnur eftir aðild? Í nýrri Eurobarometer-könnun sögðu 74% íbúa ESB að land þeirra hefði hagnast á aðildinni. Eru þau öll að fórna sjálfstæði sínu og hagsmunum, eða gæti verið að þau sjái kosti sem við höfum ekki enn fengið tækifæri til að meta? Ef Evrópusambandið er í raun jafn slæmt fyrir Ísland og haldið er fram, ætti þá ekki að vera auðvelt að sýna fram á það þegar samningurinn liggur fyrir? Er ekki betra að vita það en að loka málinu áður en staðreyndirnar liggja á borðinu? Stuðningsmenn viðræðna hafa líka stundum lofað of miklu, en þar gildir hið sama og um fullyrðingar andstæðinganna. Við vitum ekki enn hvað samningurinn mun fela í sér. Við vitum aðeins að þar geta falist bæði kostir og gallar sem þjóðin á sjálf að fá að meta. Grundvallarmunurinn er sá að já gefur okkur tækifæri til að sjá niðurstöðuna og taka síðan endanlega ákvörðun. Nei lokar málinu áður en hún liggur fyrir. Kjósi þjóðin nei fáum við aldrei að vita hvort óttinn sem hefur verið magnaður upp eigi við rök að styðjast. Málinu verður lokað, en umræðan mun halda áfram. Viljum við virkilega skilja stóran hluta þjóðarinnar eftir ósáttan, án þess að hafa nokkurn tímann fengið að sjá samninginn og með þá tilfinningu að hræðsluáróður og ósannindi hafi ráðið niðurstöðunni? Nei mun ekki sameina þjóðina. Það lokar málinu án niðurstöðu og tryggir að deilan haldi áfram um ófyrirsjáanlega framtíð. Er ekki mun líklegra að þjóðin geti sæst á niðurstöðu sem byggir á staðreyndum fremur en getgátum? Já 29. ágúst lokar engu. Það gefur okkur tækifæri til að sjá samninginn og taka síðan endanlega afstöðu þegar allar upplýsingar liggja fyrir. Við höfum áður borgað dýru verði fyrir að láta ósannindi, hálfsannleik og áróður ráða ferðinni. Ég vona að við gerum ekki sömu mistök aftur. Hver lygi skapar skuld við sannleikann. Og ef sagan kennir okkur eitthvað, þá er það að almenningur borgar oftar en ekki reikninginn. Höfundur er stafrænn hönnuður og áhugamaður um bætta samfélagsumræðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Yngvi Ómar Sigrúnarson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar