Viktor Bjarki framlengir í Kaupmannahöfn Andri Broddason skrifar 3. ágúst 2026 18:30 Viktor Bjarki Daðason hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við FC København Gaston Szerman/FCK Media Viktor Bjarki Daðason hefur framlengt samning sinn við FC København. Nýr samningur mun gilda í fimm ár.
Íslenski framherjinn gekk til liðs við FC København árið 2024, þá aðeins sextán ára gamall. Hann ólst upp hjá Fram á Íslandi en svo virðist sem honum líði vel í Danmörku fyrst hann framlengdi samninginn sinn. Viktor Bjarki vakti mikla athygli hjá yngri liðum FCK og spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið aðeins sautján ára gamall. Hann hefur átt nokkur mikilvæg mörk og varð þriðji yngsti markaskorari í sögu Meistaradeildar Evrópu þegar hann skoraði gegn Borussia Dortmund. Here to stay - Dadason 2031 📝Læs mere 🧵⤵️#fcklive #transfer pic.twitter.com/l695LiZD5g— F.C. København (@FCKobenhavn) August 3, 2026 Hann skoraði einnig mikilvæg mörk gegn Barcelona í Meistaradeildinni auk þess að hafa verið yngsti byrjunarliðsmaður sögunnar í úrslitaleik danska bikarsins. Viktor Bjarki er ánægður hjá félaginu og er stoltur af því að hafa fengið lengri samning. „Félagið hefur gefið mér greiða sýn á framfarir mínar og nú munum við setja ný markmið saman. Ég get ekki ímyndað mér betri stað til að vaxa og verða betri og ég elska að vera hérna. Þjálfarar, starfsmenn og liðsfélagar hjálpa mér að verða betri á hverjum degi.“ Þjálfari Viktors hjá FCK, Bo Svensson, er einnig himinlifandi með að Viktor Bjarki hafi skrifað undir nýjan samning. „Viktor Bjarki er með sérstaka hæfileika á vellinum sem gerir hann að spennandi leikmanni til að vinna með. Hann er hávaxinn og með góða líkamlega eiginleika sem gefur góða nærveru í teignum. Á sama tíma er hann með frábæra tækni og er með nef fyrir mörkum.“
Danski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Fleiri fréttir „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjá meira