Vill breyta lögum um .is Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 07:46 Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, stendur að baki áformunum og vill til dæmis að ekki þurfi að greiða eins hátt gjald fyrir lénið .is. vísir/anton Til stendur að breyta lögum um lénið .is samkvæmt nýbirtum áformum um breytingu á lögum um íslensk landshöfuðlén sem innviðaráðuneytið birti í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið sé að stuðla að auknu öryggi.
Í áformunum segir að skráning léna hafi um árabil verið í höndum Internet á Íslandi hf. (ISNIC) sem sé hlutafélag í einkaeigu. ISNIC er eini útnefndi skráningaraðili íslensks landshöfuðléns gagnvart alþjóðlegu stjórnkerfi internetsins og segir ráðuneytið félagið vera í einokunarstöðu hvað varðar úthlutun léna með endingunni .is. „Hvergi annars staðar á Norðurlöndunum er sambærileg starfsemi í höndum hagnaðardrifins einkafyrirtækis og víðast hvar er reglurammi um starfsemi þannig úr garði gerður að stjórnvöld hafa meira um það að segja hvernig henni er háttað,“ segir í áformunum. Lögin voru fyrst sett árið 2021 og var meginstefnan sú að viðhalda óbreyttri starfsemi. „Skráningarstofa hefur því frjálsar hendur um flesta þætti starfseminnar, svo sem verðlagningu, gæði þjónustu, skráningarreglur og úrlausn ágreiningsmála. Ráðuneytið telur að reynslan af framkvæmd laganna gefi tilefni til úrbóta.“ Vilja koma í veg fyrir leppskráningu Þar sem einungis er um áform að ræða hafa nákvæmar lagabreytingar ekki verið ákveðnar. Hins vegar eru níu úrbótaefni laganna listuð upp, til að mynda að lögin innihaldi takmarkaðar reglur um hvernig skráningarstofan á að haga starfsemi sinni. Helstu fyrirhugaðar breytingar eru einnig teknar fram en þær eru að setja nánari reglur um hvernig skráningarstofa eigi að haga starfseminni, bæta við ákvæði um umgengni við landslénið og um verðlagningu léna auk þess að koma í veg fyrir leppskráningar léna. Einnig á að setja nákvæmari reglur um réttindi neytenda og ákvæði um ódýra og skilvirka leið til úrlausnar ágreiningsmála milli skráningarstofu og notanda. Setja á heimild til að innheimta gjald af skráningarstofunni til að standa straum af því eftirliti. Að lokum verði heimildir lögreglu til að krefjast lokunar á lénum og leggja hald á lén skýrðar og ákvæði um beitingu forkaupsréttar gerð skýrari. Tekið er fram að sé ekkert aðhafst geti traust á landshöfuðléninu dvínað.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Netglæpir Netöryggi Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Fleiri fréttir Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Sjá meira