Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Freyja Þórisdóttir skrifar 3. ágúst 2026 21:30 Salat frá birgjanum hefur verið tekið úr sölu á öllum stöðum keðjunnar Taco Bell. AP/Getty Umfangsmikill sníkjudýrafaraldur sem braust út í Bandaríkjunum í júlímánuði, þar sem helsta einkennið er harkalegur niðurgangur, hefur dregið tvo til dauða. Yfirvöld hafa tengt faraldurinn við salat sem var innflutt og selt af Taylor Farms en keðjur á borð við Taco Bell keyptu salat frá birgjanum.
Heilbrigðisyfirvöld í Michigan-fylki hafa staðfest fyrstu tvö dauðsföllin sem tengjast yfirstandandi faraldri, sýkingu af völdum sníkjudýrsins cyclospora cayetanesis. Um er að ræða sýkingu sem oftast berst úr matvælum á borð við salat, ferskar kryddjurtir eða ber. Hún er fátíðari en salmonella og E. coli en veldur, eins og fyrr segir, kröftugum niðurgangi. Þá er fólk stundum veikt í allt að mánuð og getur veikst aftur eftir að hafa náð sér. Cyclosporiasis smitast ekki manna á milli og líkt og fyrr segir eru dauðsföll fátíð. Voru veikir fyrir Einstaklingarnir tveir voru með „veruleg undirliggjandi heilsufarsvandamál sem cyclosporiasis-sýking og ofþornun kunna að hafa haft áhrif á,“ sögðu heilbrigðisyfirvöld ríkisins er fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Tilfelli hafa komið upp í tugum fylkja en flest þeirra hafa komið upp í Michigan og Ohio. Í því fyrrnefnda hafa komið upp ríflega ellefu þúsund tilfelli og rétt tæplega tvö hundruð manns hafa verið lögð inn á sjúkrahús með möguleg tilfelli. Nú hefur upphaf faraldursins verið tengt við salat sem flutt var inn frá Taylor Farms í Mexíkó, sem er mikilvægur birgir fyrir marga veitingastaði í Bandaríkjunum, en bandaríska skyndibitakeðjan Taco Bell tók salat frá þessum úr sölu hjá sér er fram kemur í frétt BBC. Þar er einnig greint frá því að bresk heilbrigðisyfirvöld hafi varað við faraldrinum í kjölfar nýlegra tilfella sem greinst hafa hjá ferðalöngum sem eru að snúa heim.
Bandaríkin Matur Matvælaframleiðsla Mexíkó Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira