Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. ágúst 2026 20:00 Sigsteinn Sigurbergsson við hlið viðarplötunnar sem er beint fyrir framan íbúðina hans fyrir framan framkvæmdir við Fannborgarreitinn. Vísir/Vilhelm Íbúi í Hamraborg þar sem niðurrif stendur yfir vegna byggingu nýs miðbæjar Kópavogs segir hávaðann óbærilegan. Hann sér nú ekkert út um gluggann nema viðarplötu. Annar íbúi segir að svo virðist vera sem það hafi hreinlega gleymst að fólk búi í Hamraborg.
Framkvæmdir við Fannborg og Hamraborg eru komnar á fullt og íbúar, þeir hafa ekki farið varhluta af því. Og útsýnið á jarðhæð, það er ennþá minna eins og sjá má. En hávaðinn er verstur að sögn Sigsteins Sigurbergssonar íbúa sem býr nú fyrir framan viðarplötu á fyrstu hæð í Fannborg, vélarnar séu ræstar klukkan átta á morgnana. Það er svolítill hávaði beint fyrir utan hjá þér? „Finnst þér það?“ svarar Sigsteinn hlæjandi. „Já þetta er mikið. Kópavogsbær stóð sig mjög vel með samráðfundina og að skipuleggja þetta, upplýsinngagjöfin góð, en svo þegar kemur að þessu, þetta er, þetta er skelfilegt. Svo er það rykið. Ég kom heim einn daginn og það er ryk á öllu. Lag af ryki, á hverjum einasta hlut. Ég væri alveg til í að láta þrífa hjá mér og senda þeim reikninginn, má það?“ Samkvæmt svörum verktakans, Mannverk eru viðarplötur settar við íbúðir íbúa til að tryggja öryggi þeirra. Mesti hávaðinn eigi að vera að baki um áramót. Kópavogsbær hefur áður sagt í svörum til fréttastofu að allt sé gert til að miðla upplýsingum til íbúa vegna framkvæmdanna. Elín Kona Eddudóttir íbúi sem býr við hinn uppbyggingarreitinn í Hamraborg, Traðarreitinn segir farir sínar ekki sléttar en þar er framkvæmdaaðili Jáverk. „Það á að sprengja tíu metra hérna niður alveg út að Digranesvegi, við vitum ekki hvenær á að byrja. Það á að byrja eftir 20. ágúst þarna, fjórum til sex sinnum á dag sex daga vikunnar í fjóra mánuði, við vitum ekkert hvað þeir ætla að sprengja oft á dag hér, hvað marga mánuði.“ Elín Kona Eddudóttir við Traðarreitinn en hún skrifaði skoðanagrein á Vísi vegna framkvæmdanna, undir yfirskriftinni: Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi.Vísir/Vilhelm Áætlað er að framkvæmdum á svæðinu ljúki árið 2030. „Þetta er ekki hægt,“ segir Siggeir. „En ég held að við eigum góðan bæjarstjóra. Ég hef fulla trú á því að hún geri eitthvað fyrir okkur. Er þetta ekki bara spurning um að fella niður fasteignagjöld á meðan framkvæmdum stendur?“ „Við viljum helst fá réttar og sannar upplýsingar og ekki bara einhver ekki svör,“ segir Edda. Bæjaryfirvöld og bæjarstjóri hafa ítrekað sagt að það hafi verið átt í nánu samráði við íbúa, hvað myndirðu segja við því? „Já....góður þessi.“
Kópavogur Skipulagsmál Tengdar fréttir Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Einungis munaði örfáum mínútum að eldri borgari á níræðisaldri yrði fyrir glerbroti úr rúðu þegar bárujárn fauk inn um glugga á svefnherbergi í Fannborg í Kópavogi. 7. apríl 2026 19:02 Staðfesta byggingaráform á Fannborgar- og Traðarreit Bæjarstjórn Kópavogs hefur staðfest að byggingaráform á Fannborgarreit og Traðarreit séu í samræmi við deiliskipulag miðbæjar Kópavogs. Í tilkynningu segir að uppbygging á reitunum marki fyrstu áfangana í uppbyggingu á svæðinu og sé liður í að skapa lifandi og fjölbreyttan miðbæ fyrir íbúa, gesti og atvinnulíf í miðbæ Kópavogs. Undirbúningur hefur staðið yfir frá árinu 2017. 28. maí 2025 11:27 Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Eldri borgari sem um árabil hefur barist gegn framkvæmdum í miðborg Kópavogs er fluttur á brott. Hann segist hafa gefist upp, selt íbúð sína á hrakverði og ber Kópavogsbæ ekki góða sögu. Lögfræðingur húsfélags í Fannborg segir íbúa fyrst og fremst ósátta við skort á upplýsingum frá bænum. 5. mars 2026 15:42 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira
Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Einungis munaði örfáum mínútum að eldri borgari á níræðisaldri yrði fyrir glerbroti úr rúðu þegar bárujárn fauk inn um glugga á svefnherbergi í Fannborg í Kópavogi. 7. apríl 2026 19:02
Staðfesta byggingaráform á Fannborgar- og Traðarreit Bæjarstjórn Kópavogs hefur staðfest að byggingaráform á Fannborgarreit og Traðarreit séu í samræmi við deiliskipulag miðbæjar Kópavogs. Í tilkynningu segir að uppbygging á reitunum marki fyrstu áfangana í uppbyggingu á svæðinu og sé liður í að skapa lifandi og fjölbreyttan miðbæ fyrir íbúa, gesti og atvinnulíf í miðbæ Kópavogs. Undirbúningur hefur staðið yfir frá árinu 2017. 28. maí 2025 11:27
Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Eldri borgari sem um árabil hefur barist gegn framkvæmdum í miðborg Kópavogs er fluttur á brott. Hann segist hafa gefist upp, selt íbúð sína á hrakverði og ber Kópavogsbæ ekki góða sögu. Lögfræðingur húsfélags í Fannborg segir íbúa fyrst og fremst ósátta við skort á upplýsingum frá bænum. 5. mars 2026 15:42