Viðskipti innlent

Far­þegum fækkaði milli ára

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Endurnýjun á flugflota Icelandair skilar bæði aukinni hagkvæmni í rekstri og minna kolefnisfótspori. Forstjóri fagnar því að sætanýtingarhlutfall hafi haldist milli ára þrátt fyrir samdrátt í flugáætlun.
Endurnýjun á flugflota Icelandair skilar bæði aukinni hagkvæmni í rekstri og minna kolefnisfótspori. Forstjóri fagnar því að sætanýtingarhlutfall hafi haldist milli ára þrátt fyrir samdrátt í flugáætlun. Samsett

Farþegum Icelandair fækkaði um tvö prósent milli ára í júlímánuði. Í ár voru fluttir 599 þúsund farþegar en í fyrra, júlí 2025, voru þeir 611 þúsund. Sætanýting var 88 prósent og stendur hún í stað milli ára. Þá var stundvísi 77,1 prósent samkvæmt mælingum félagsins.

Tekjur á hvern sætiskílómetra jukust um tólf prósent á milli ára og voru 11,32 sent. Í tilkynningu segir að þann árangur megi rekja til áherslu félagsins á arðbærustu markaðina á hverjum tíma og markvissrar leiðakerfisstýringar.

Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um átta prósent milli ára en fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um níu prósent.

Ísland enn vinsælt meðal ferðamanna

Félagið segir í tilkynningu að eftirspurn á lykilmörkuðum hafi áfram verið sterk í mánuðinum. Tekist hafi að fjölga farþegum til Íslands um prósent á milli ára og farþegum frá Íslandi um ellefu prósent.

Sem fyrr segir flutti Icelandair rétt tæplega sex hundruð þúsund farþega í júlí. Þar af voru 42 prósent á leið til Íslands, 19 prósent frá Íslandi, 35 prósent voru tengifarþegar og fjögur prósent ferðuðust innanlands.

Farþegafjöldi í innanlandsflugi jókst um átta prósent milli ára. Á sama tíma dróst fjöldi tengifarþega saman um sextán prósent.

Nýjar flugvélar styðja við markmið félagsins

Félaginu tókst að minnka kolefnislosun sína um þrjú prósent milli ára. Er nýjum og sparneytnari vélum þar þakkað fyrir, auk áherslu á hagkvæmni í rekstri og góða nýtingu flotans en venjuleg flugvél Icelandair kann að vera allt að tuttugu klukkustundir á sólarhring í loftinu.

„Júlí er einn annasamasti mánuður ársins hjá Icelandair. Við fluttum 599 þúsund farþega og náðum 88,8% sætanýtingu á sama tíma og við drógum framboð saman um 5% á milli ára. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá áframhaldandi vöxt á þeim lykilmörkuðum sem við leggjum áherslu á, sem undirstrikar sterka eftirspurn eftir ferðalögum til, frá og innan Íslands sem hafði jákvæð áhrif á tekjumyndun,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×