Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar 10. ágúst 2026 13:32 Undanfarið hef ég orðið var við sífellt fleiri sem lýsa afstöðu sinni með svipuðum hætti. Þeir segjast ekki endilega vera fylgjandi aðild Íslands að Evrópusambandinu en vilja engu að síður segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Rökin eru einföld: Við skulum sjá hvaða samningur fæst og taka síðan endanlega ákvörðun þegar hann liggur fyrir. En er þetta svona einfalt? Þessi grein er ekki skrifuð með þá í huga sem eru sannfærðir ESB-sinnar. Og hún er ekki skrifuð með þá í huga sem segjast vilja segja já til að sjá en hafa í raun þegar gert upp hug sinn og ætla að segja já – sama hvað. Hún er skrifuð með þann hóp í huga sem raunverulega er á báðum áttum og telur að hægt sé að segja já núna, sjá hvað kemur út úr ferlinu og taka síðan endanlega afstöðu þegar samningur liggur fyrir. Ég skil þá hugsun. En ég held að í henni felist vanmat á því hvaða þýðingu það hefur að segja já við því að hefja aðildarferlið. Það er ekki bara verið að kíkja í pakkann Þegar talað er um að segja já til að „sjá hvað kemur út úr samningunum“ er auðvelt að ímynda sér að við séum einfaldlega að skoða hvað standi til boða. En aðildarferli að Evrópusambandinu er ekki þannig. Það er formlegt ferli sem tekur tíma, krefst mikillar vinnu og kostnaðar og felur í sér yfirferð á íslensku regluverki og stjórnsýslu í ljósi regluverks sambandsins. Það er því ekki verið að taka lítið skref til hliðar heldur að hefja vegferð sem hefur ákveðna stefnu og skýrt markmið. Það skiptir máli. Þegar búið er að leggja mikið undir Auðvitað missir þjóðin ekki formlega réttinn til að segja nei síðar. En þegar búið er að verja árum, fjármunum og pólitísku fjármagni í slíkt ferli geta forsendurnar breyst. Margir sem nú vilja segja já til að sjá niðurstöðuna telja sig geta sagt nei síðar ef samningurinn reynist óásættanlegur. Það er rétt. En eftir margra ára ferli getur líka vaknað önnur hugsun: Við erum búin að leggja svo mikið í þetta. Eigum við virkilega að hætta núna? Þarna er að mínu mati raunveruleg áhætta við að segja já núna. Það er ekki víst að sokkinn kostnaður ráði úrslitum. En hann getur haft áhrif. Það sama á við um væntingar, pólitískt fjármagn og þá hagsmuni sem myndast í kringum ferlið. Þess vegna er ekki nóg að segja: „Við getum alltaf sagt nei síðar.“ Fyrsta jáið er ekki endanlegt já Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst er ekki atkvæðagreiðsla um endanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. En hún er heldur ekki hlutlaus upplýsingaleit. Með jái er verið að veita stjórnvöldum umboð til að hefja formlegt aðildarferli sem mun krefjast mikillar vinnu og fjármuna. Smám saman verður til pólitískur veruleiki í kringum það ferli. Fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, Carl Baudenbacher, hefur bent á að þegar slíkt ferli sé komið af stað geti reynst erfitt að hverfa frá því síðar, enda aukist hagsmunir af áframhaldandi viðræðum eftir því sem á líður. Hvort menn eru sammála niðurstöðu hans eða ekki finnst mér það vera ábending sem vert er að hafa í huga. En hvað ef „skapandi lausnin“ er ekki nógu góð? Í umræðunni hafa komið fram vonir um að hægt verði að finna „skapandi lausnir“ fyrir íslensk sérmál, sérstaklega sjávarútveg og landbúnað. Ég vona það líka. En vonir eru ekki samningur. Þær eru ekki undanþága. Og þær segja okkur ekki hver niðurstaðan verður. Þess vegna þarf að spyrja sig: Hvað ef það sem kemur út úr viðræðunum reynist ekki vera það sem við vonuðumst eftir? Þá verðum við ekki lengur á byrjunarreit heldur komin nokkur ár inn í ferli sem þegar hefur kostað tíma, vinnu og fjármuni. Grundvallarmunurinn Margir segja að þjóðin þurfi að sjá niðurstöðu samningaviðræðna áður en hún geti tekið upplýsta ákvörðun. Ég skil þau rök vel. En ef það er niðurstaða viðræðnanna sem skiptir mestu máli, þá liggur einnig fyrir að þær upplýsingar verða ekki til staðar þegar þjóðin greiðir nú atkvæði um að hefja ferlið. Þar liggur að mínu mati grundvallarmunurinn. Núna er þjóðin beðin um að samþykkja ferlið áður en niðurstaðan liggur fyrir. Að lokum Ríkisstjórnin hefur ákveðið að þjóðin skuli velja á milli þess að hefja aðildarferlið eða hafna því. Það er því jafn lögmætt að segja nei og að segja já. Þeir sem vilja sjá niðurstöðu viðræðna geta haft þá skoðun. Að sama skapi er það fullkomlega lögmæt afstaða að telja rétt að hafna því að hefja ferlið. Sú staðreynd að niðurstaðan geti orðið nei er einfaldlega afleiðing af þeirri spurningu sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja fyrir þjóðina. Og til þeirra sem eru óvissir vil ég segja þetta: Ekki spyrja þig hvort öðrum eigi að vera heimilt að sjá hvaða samningur kynni að fást. Spyrðu þig hvort þú teljir rétt að Ísland hefji þetta ferli. Ef þú ert ekki sannfærð eða sannfærður um að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið, skaltu spyrja þig hvort þú sért að segja já vegna þess að þú telur það rétta ákvörðun eða vegna þess að þér finnst öðrum ekki eiga að vera meinað að sjá hvernig viðræðurnar fara. Það fyrra er afstaða til málsins. Hið síðara er samúð með ákveðinni leið að ákvörðun. Ég hef mína afstöðu skýra. Ég ætla að segja nei. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar