Billy Long kominn á klakann Samúel Karl Ólason skrifar 10. ágúst 2026 17:57 Björn Skúlason, Halla Tómasdóttir, Barbara Long og Billy Long. Sendiráð Bandaríkjanna Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, tók formlega við embætti í dag þegar hann afhenti Höllu Tómasdóttur, forseta, trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Long vakti mikla athygli hér á landi þegar hann grínaðist í fyrra með það að ætla að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna, sem hann baðst svo afsökunar á.
Haft er eftir sendiherranum, sem heitir í raun William Long, á Facebooksíðu sendiráðsins að Ísland og Bandaríkin eiga sér langa sögu þegar kemur að samvinnu á ýmsum sviðum og vináttu. „Ég hlakka til þess að vinna með íslensku þjóðinni að því að dýpka þessa samvinnu og styrkja tengingu okkar þjóða." Tiltölulega langt er síðan Long var skipaður í sendiherrasætið af Donald Trump en þá hafði hann áður verið yfirmaður Skattsins í Bandaríkjunum í um tvo mánuði. Skipunin var svo samþykkt í vor. Í millitíðinni vakti hann mikla athygli hér á landi þegar hann sagðist ætla að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna, eftir að Kanada yrði 51. ríkið eins og Trump hefur ítrekað talað um, og að hann yrði sjálfur ríkisstjóri. Stofnaður var undirskriftarlisti þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var hvött til að hafna skipun Long. Long baðst þó afsökunar og sagði ummælin hafa verið grín en „algjörlega óviðeigandi“. Á fundi utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings í febrúar taldi Long upp fjögur forgangsatriði til að styrkja enn frekar samband Bandaríkjanna og Íslands. Hann sagðist vilja vernda bandaríska ríkisborgara á Íslandi, efla öryggissamstarf ríkjanna, efla samstarf á sviði efnahags- og orkumála. Þá vildi hann styrkja samstarf á norðurslóðum.
Bandaríkin Sendiráð Íslands Tímamót Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira