Þúsunda saknað og tíminn að renna út Samúel Karl Ólason skrifar 11. ágúst 2026 23:46 Margir óttast um ættingja sína og nágranna en gífurlegur fjöldi húsa hrundi í jarðskjálftanum á mánudaginn. AP/Ivan Valencia Björgunarsveitir og óbreyttir borgarar leita enn í rústum bygginga víðsvegar um Kólumbíu eftir að 7,4 stiga jarðskjálfti skók þar jörðu í gær. Jarðskjálftinn olli umtalsverðum skemmdum í vesturhluta landsins. Tala látinna stendur í 250 og 2.595 eru slasaðir og að minnsta kosti 195 er saknað, samkvæmt forseta landsins. Aðrar tölur benda þó til þess að fjöldi þeirra sem er saknað sé nær fjögur þúsund.
Abelardo de la Espriella, forseti, segir að rúmlega þúsund heimili séu ónýt og að mikill fjöldi hafi orðið fyrir skemmdum. Hús hrundu í tugum bæja og borga í Kólumbíu vegna skjálftans í gær en yfirvöld segja að dauðsföllin hafi flest átt sér stað í borgunum Cali, Pereira, Manizales og í Quibdo. Reuters segir að minnsta kosti 250 hafa dáið. AP fréttaveitan hefur eftir embættismönnum og öðrum í dreifðari byggðum að þeir óttist að ekki sé búið að ná utan um umfang skaðans að fullu. Fyrstu 48 til 72 klukkustundirnar eftir jarðskjálfta skipta sköpum þegar kemur að því að bjarga fólki úr rústum. Sum samfélög Kólumbíu eru þó ekki auðveldlega heimsótt og það gæti tekið nokkra daga fyrir björgunarsveitir að komast þangað. Jarðskjálftinn fannst hvað mest í Choco, afskekktu og fátæku héraði Kólumbíu. Þar hafa vígahópar og glæpasamtök barist um yfirráð og stór hluti héraðsins er eingöngu aðgengilegur með bátum, gegnum frumskóga eða með flugvélum. Í samtali við AP sagði einn leiðtogi samfélagsins þar að höfuðborg héraðsins og nærliggjandi byggðir hefðu skemmst mjög mikið í jarðskjálftanum og að eftirskjálftar fyndust enn. Fólk svæfi undir berum himni. Björgunarsveitarmenn að störfum í PereiraAP/Fernando Vergara Í kappi við tímann Blaðamaður AP ræddi við mann sem hafði keyrt langa leið til Pereira, þar sem bróðir hans býr. Maðurinn stóð fyrir utan rústir íbúðarhúss og sagðist handviss um að bróðir hans lægi þar undir, þar sem bíll hans stóð við húsið. Maðurinn naut þó takmarkaðrar aðstoðar og heyrði engin hljóð í rústunum. Aðrir í svipaðri stöðu hafa auglýst eftir týndum fjölskyldumeðlimum í gagnagrunni á internetinu. Þegar þetta er skrifað eru rúmlega fjögur þúsund nöfn skráð þar. Líklegt er að það muni taka þó nokkra daga að fá almennilega mynd af skaðanum og manntjóninu eftir jarðskjálftann. Björgunarsveitir og almenningur keppast í millitíðinni við að leita í rústum og reyna að bjarga þeim sem hægt er að bjarga.
Kólumbía Náttúruhamfarir Tengdar fréttir Tala látinna komin yfir hundrað Enn er verið að meta manntjón vegna jarðskjálfta af stærðinni 7,4 sem skók vestanverða Kólumbíu í dag. Tala látinna er komin yfir hundrað að sögn forseta landsins. 10. ágúst 2026 18:53 Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Jarðskjálfti af stærðinni 7,4 skók vestanverða Kólumbíu og nágrannaríkið Ekvador í dag. Minnst tuttugu og sex eru sagðir hafa látist og mikið tjón orðið á byggingum við upptök jarðskjálftans. 10. ágúst 2026 13:50 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira
Tala látinna komin yfir hundrað Enn er verið að meta manntjón vegna jarðskjálfta af stærðinni 7,4 sem skók vestanverða Kólumbíu í dag. Tala látinna er komin yfir hundrað að sögn forseta landsins. 10. ágúst 2026 18:53
Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Jarðskjálfti af stærðinni 7,4 skók vestanverða Kólumbíu og nágrannaríkið Ekvador í dag. Minnst tuttugu og sex eru sagðir hafa látist og mikið tjón orðið á byggingum við upptök jarðskjálftans. 10. ágúst 2026 13:50