Monaco búið að gefast upp á Pogba Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. ágúst 2026 08:30 Hvað tekur við hjá Paul Pogba? epa/SEBASTIEN NOGIER Búist er við því að Monaco muni rifta samningi Pauls Pogba eftir að hann meiddist á æfingu liðsins í gær. Óttast er að hann verði frá keppni í nokkra mánuði.
Pogba samdi við Monaco síðasta sumar eftir að hann fékk grænt ljós á að snúa aftur á völlinn eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Á síðasta tímabili spilaði Pogba aðeins sex leiki með Monaco og líklegt þykir að þeir verði ekki fleiri. Viðræður um riftun á samningi Pogbas við Monaco standa nú yfir. Pogba var dæmdur í fjögurra ára keppnisbann í febrúar 2024 eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Bannið var hins vegar stytt eftir ákvörðun Alþjóða íþróttadómstólsins og fyrir síðasta tímabil gekk Pogba í raðir Monaco. Meiðsli gerðu það hins vegar að verkum að hann kom afar lítið við sögu hjá Monaco á síðasta tímabili og nú bendir flest til þess að hann þurfi að finna sér nýtt félag. Síðustu ár hafa verið erfið fyrir hinn 33 ára Pogba. Hann samdi aftur við Juventus sumarið 2022 en lék aðeins tólf leiki með liðinu áður en hann var dæmdur í keppnisbannið. Pogba varð dýrasti leikmaður í heimi þegar Manchester United keypti hann frá Juventus fyrir áratug.
Franski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Sjá meira