„Ég er með stærri drauma“ Aron Guðmundsson skrifar 13. ágúst 2026 11:02 Viktor Bjarki í leik með FC Kaupmannahöfn þar sem hann sló í gegn á síðasta tímabili. Getty/Kristian Tuxen Ladegaard Viktor Bjarki Daðason, framherji FC Kaupmannahafnar, skrifaði undir fimm ára framlengingu á samningi sínum við félagið á dögunum. Hann hefur aðlagast lífinu í Kaupmannahöfn en það tók tíma. Þar í borg sér hann fram á að geta tekið áframhaldandi framförum áður en hann tekur skref í átt að stærri draumum sem hann á.
Viktor Bjarki stimplaði sig svo sannarlega inn af krafti í aðalliði FC Kaupmannahafnar á síðasta tímabili, bæði heima fyrir og í Meistaradeildinni. Framherjinn stóri og stæðilegi vann sér inn framlengingu á sínum samningi og eftir að hafa hrist af sér leiðinlegt meiðsli er hann klár í að láta til sín taka á ný. Viktor var í leikmannahópi FC Kaupmannahafnar í forkeppni Sambandsdeildarinnar í gær og því afar stutt í að hann spili sínar fyrstu mínútu eftir meiðslin. „Þetta er búinn að vera minn klúbbur núna í að verða tvö ár. Ég er búinn að bæta mig fullt sem leikmaður og manneskja. Mun halda áfram núna næstu fimm ár í þessum frábæra klúbbi og bæta mig vonandi til þess að fara eitthvað enn þá lengra. Þetta er frábær og stór klúbbur. Að vera hér til næstu fimm ára myndi ekki skaða neinn. En ég er með stærri drauma. Auðvitað er geggjað að fá framlengingu og fimm ára samning. Ég er mjög spenntur fyrir komandi árum og því að bæta mig sem leikmaður í þessu liði.“ Viktor taldi það vera það rétta að halda tryggð við félagið í Kaupmannahöfn á þessum tímapunkti þó að áhugi hafi verið á hans kröftum annars staðar frá. „Ég er ekki búinn að heyra mjög mikið af því vegna þess að það fer bara í gegnum umboðsmanninn minn og hann er alltaf með fókus á því en segir mér ekkert mikið því hann vill bara að ég einblíni á staðinn sem ég er á núna. En ég vissi af einhverju, heyrði af einhverju. En mér fannst eins og rétta ákvörðunin væri að taka allavegana nokkur tímabil kannski enn með FC Kaupmannahöfn, bæta mig aðeins meira sem leikmaður og þá get ég stokkið á rétta tækifærið þegar að það kemur.“ Viktor er aðeins átján ára gamall og á allan sinn feril framundan en hann var aðeins sextán ára þegar hann hélt út í atvinnumennskuna frá Fram. Hann hefur aðlagast lífinu ytra en það tók sinn tíma. „Fyrsta árið var helvíti erfitt. Ég var alltaf að hugsa hvenær ég gæti komið heim til Íslands næst og hvenær það væru frídagar. Nú hugsa ég minna um það. Núna er ég farinn að elska borgina meira og hafa gaman af henni. Ég er byrjaður að aðlagast miklu betur, elska Köben núna.“
Danski boltinn Tengdar fréttir Viktor sló Meistaradeildarmet Lamine Yamal Hinn sautján ára gamli Viktor Bjarki Daðason datt kannski niður í fjórða sætið á lista yfir yngstu markaskorara í sögu Meistaradeildarinnar en hann sló annað Meistaradeildarmet með því að skora á móti Kairat Almaty í kvöld. 26. nóvember 2025 23:28 Viktor Bjarki skoraði með hælspyrnu Viktor Bjarki Daðason skoraði afar laglegt mark í 3-0 sigri FC Kaupmannahafnar gegn Vejle í 29. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. 27. apríl 2026 18:56 Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met Hvað er Onana að gera? Sjá meira
Viktor sló Meistaradeildarmet Lamine Yamal Hinn sautján ára gamli Viktor Bjarki Daðason datt kannski niður í fjórða sætið á lista yfir yngstu markaskorara í sögu Meistaradeildarinnar en hann sló annað Meistaradeildarmet með því að skora á móti Kairat Almaty í kvöld. 26. nóvember 2025 23:28
Viktor Bjarki skoraði með hælspyrnu Viktor Bjarki Daðason skoraði afar laglegt mark í 3-0 sigri FC Kaupmannahafnar gegn Vejle í 29. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. 27. apríl 2026 18:56