Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar 14. ágúst 2026 11:00 Nú blánar yfir berjamó. Eftirlætisárstíð mín er að ganga í garð. Berjaást er ættgeng í minni fjölskyldu og sjálf hóf ég mitt ævilanga ástarsamband í litlu þorpi þar sem lífið snerist um fisk nema nokkra haustdaga þegar verðmætasköpunin færðist úr frystihúsi út í móa og inn í eldhús. Ég minnist þess að íbúar A-götu og B-götu, gatnanna tveggja sem þá mynduðu Þorlákshöfn, færu saman til berja í Selvoginn. Ég man vörubílspall með mjólkurbrúsum sem keppst var við að fylla og berjabláar taubleyjur í hverju eldhúsi, síandi C-vítamínríkan löginn í saft og sultur. Þótt Selvogurinn líti ekki út eins og gjöfult berjaland leynast litlu bætiefnasprengurnar um land allt. Erfitt er þó að treysta á berin, líkt og fiskistofnana. Fátt virðist snúnara en að spá um sprettuna því að breytur eru margar; snjóalög að vori og sambland sólarljóss og úrkomu á vaxtartímanum. Búgreinin berjatínsla Hér með fer ég þess á leit við hagspekinga landsins að þeir leggist yfir útreikninga á efnahagslegum áhrifum búgreinarinnar berjatínslu: Hver er sprettan í meðalári á landinu öllu? Hver er stofnstærð ólíkra tegunda? Hve mikið er nýtt og hvað verður frostinu að bráð? Hvernig mætti auka verðmæti íslenskra berja? Ætti að stofna auðlindanefnd? Gæti verið þjóðhagslega hagkvæmt að gefa landsmönnum berjatínslufrí til að þjóðin fái íslenskt C-vítamín í stað erlendra berja með vatnsbragði? Ókeypis núvitund í lyngbrekku Þetta allt íhuga ég liggjandi í lyngbrekku – nema þegar ég hugsa um nákvæmlega ekki neitt. Hröð rútína handanna kemur mér fljótt í hugleiðslukennt núvitundarástand sem rándýrt væri á líkamsræktarstöð. Sama hvernig viðrar. Ég hef farið í berjamó á sundbol um hásumar en einnig bjargað verðmætum í slagviðri með grifflur á króknum höndunum. Ég man haust í Mývatnssveit þegar ég fór daglega til berja fram í miðjan október en einnig önnur þegar gæsir og snemmbúin næturfrost höfðu eyðilagt uppskeruna áður en berin náðu að blána. Berjatínsla er með viðkvæmari búgreinum. Fjallagrös og fleira Ég fer gjarnan upp til heiða þar sem ég get tínt ber með annarri höndinni en tekið grös með hinni. Mér finnst jafnvel skemmtilegra að tína Cetraria islandica; ég er enn nær móður jörð þegar ég þreifa eftir vel földum fléttunum í moldinni en þegar ég slít berin af lynginu. Fjallagrösin nota ég í þeytinginn minn fram á næsta haust. Reyndar sagði mér gamall maður, sem fátt man nema fortíðina, að grösin yrði ég að hita að suðumarki. Ég bar það undir næringarfræðing, sem virtist fáfróður um fjallagrös en taldi rétt athugað að líkaminn gæti ekki unnið úr fléttunum ómeðhöndluðum. - En hreindýrin éta þau beint af jörðinni, benti ég á. - Þú ert ekki hreindýr, sagði næringarfræðingurinn, þau hafa öðruvísi maga. Síðan ég fór að ferðast reglulega til Indlands jókst áhugi minn á heilandi jurtum enn fremur. Ég man að því var haldið fram þegar framandi krydd fóru að berast hingað upp á túndruna að krydd væru í eðli sínu óholl og einungis notuð í útlöndum til að fela ýldubragð matarins. Á Indlandi hóf ég rannsóknir á lækningarmætti jurta með mælitækinu eigin líðan og um leið tóku algóryþmarnir að senda mér ósköpin öll af upplýsingum í formi myndbanda. Ég horfi á þau í rúminu á kvöldin en þykir verst hvað þau greinir á um mikilvæga hluti eins og ákjósanlegt inntökumagn, milliverkanir og hvenær sólarhrings jurtanna skuli neytt. Náttúrulækningavísindin á YouTube eru svo flókin að ég missi oft móðinn. Þeytingur í þróun Ég vakna samt hress að morgni, tek lýsið (sem um þessar mundir er unnið úr síld) og nýskapa mér hollustuþeyting. Í hann fara handtínd bláber, hálfsoðin fjallagrös, þaramjöl, gerjað engifer auk þess sem YouTube mælir með hverju sinni – og svo auðvitað hinn bráðholli kefír. Helst úr kaplamjólk. Ég geri mér jafnvel ferðir til Austur-Evrópu þar sem kraftmikill kefír hryssunnar fæst í neytendapakkningum í stórmörkum og tryggir mér langlífi. Lengi vel hafði ég afar lítið eldhús og var því eiginlega hætt að nenna að elda nema fyrir gesti. Þótt ég sé nú flutt í stærra eldhús held ég enn mikið til þeim vana að neyta fæðutegunda í stað matrétta. Ég hef orðið meiri áhuga á því sem ofan í pottinn fer en upp úr honum kemur. ... like a natural woman Sjálfsprottinn jurtaáhugi minn setur líka mark sitt á húðina. Eitt sinn var ég á gangi um sveitir Tansaníu þegar innfædd vinkona beygði sig niður, sleit upp blóm, opnaði aldinið og kreisti olíudropa í lófa mér. - Þetta berum við á okkur, sagði hún, þetta er castor oil. Castor olían, sem við köllum laxerolíu, er vinsæl, fjölvirkandi snyrtivara meðal afrískra og indverskra kvenna sem mér þykja einmitt fegurstar kvenna. Orðið laxerolía hljómar kannski ekki lekkert en þegar ég ber hana á mig líður mér eins og söguhetju í biblíunni, ég er smurð. Kannski tefli ég á tæpasta vað, hrukkulega séð, að nota ekki kemísk næturkrem. En ég hef bara svo lengi velt fyrir mér hvers vegna karlkynið er ekki miklu hrukkóttara en við kvenkynið sem notum óneitanlega meira af dýrum hrukkubönum. Því held ég áfram að kaupa mína castor-olíu í stórmörkuðum og ávarpa hana með orðum tónlistarkonunnar Carole King: „You make me feel like a natural woman.” En aftur að bláberjunum Afasystir mín, fædd á þarsíðustu öld, var læknir. Mér er sagt að hún hafi látið rannsaka næringargildi bláberja en rannsóknin olli ætt minni vonbrigðum. Berin reyndust ekkert sérlega holl. Nú er öldin önnur og bláber sögð ofurfæða. Ég bíð því róleg eftir að vísindin sanni líka fegurðaráhrif ricínólsýrunnar í laxerolíunni. Á meðan heldur fólkið mitt áfram að fara til berja. Sá yngsti kippir í kynið. Til er mínútu myndskeið frá því að hann átján mánaða gamall var fyrst settur ofan í væna berjalautu. Með sælusvip smjattar hann á nýjasta uppáhaldsorðinu sínu: - Bláber, bláber, bláber... Höfundur er ritlistarkennari og áhugamennskja um fæðutegundir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ber Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun