Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Kjartan Kjartansson skrifar 14. ágúst 2026 14:48 Eiríkur Elís Þorláksson og Hildur Briem, verðiand dómarar við Landsrétt. Dómsmálaráðuneytið Dómsmálaráðherra hefur skipað Eirík Elís Þorláksson og Hildi Briem dómara við Landsrétt. Skipan þeirra tekur gildi í haust en bæði hafa áður starfað sem settir landsréttardómarar.
Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hafi lagt til við forseta að þau Eiríkur og Hildur verði skipuð landsréttardómarar, Eiríkur frá 1. september og Hildur frá 1. október. Um Eirík Elís segir að hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2001 og LL.M.- námi við King´s College í London árið 2008. Hann öðlaðist réttindi til málflutnings í héraði árið 2002 og fyrir Hæstarétti árið 2008. Þá lauk hann prófi til að teljast hæfur stjórnarmaður í vátryggingafélagi 2011. Að loknu embættisprófi starfaði Eiríkur Elís um hríð hjá óbyggðanefnd en hóf árið 2002 störf á lögmannastofu þar sem hann starfaði til ársins 2011, þar af sem meðeigandi frá 2004. Frá 2012 hefur hann starfað við lagadeild Háskólans í Reykjavík, fyrst sem lektor en sem dósent frá 2017, auk þess sem hann hefur sinnt lögmannsstörfum samhliða á þeim tíma. Frá mars 2019 til apríl 2024 gegndi hann starfi deildarforseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík auk þess að sinna kennslu við aðra háskóla. Þá var hann settur dómari við Landsrétt samtals í um fjögurra mánaða skeið á árunum 2024 og 2025, og var varadómandi í Endurupptökudómi 2021 - 2026. Eiríkur Elís hefur jafnframt ritað fræðibækur í lögfræði og fjölda ritrýndra fræðigreina og setið í stjórnum ýmissa félaga, svo sem Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og Stoða hf., í stjórn Bókaútgáfunnar Codex og gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands, þar af sem formaður frá 2022 til 2024. Eiríkur hefur verið settur dómari við Landsrétt frá 5. janúar 2026. Héraðsdómari í fimmtán ár Hildur Briem lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2000, LL.M.- námi við Háskólann í Lundi árið 2005 og viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2022. Hún öðlaðist réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómi árið 2001. Að loknu embættisprófi starfaði hún sem fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík á ákærusviði embættisins en hóf störf hjá umboðsmanni Alþingis árið 2005 og starfaði þar til ársins 2008 þegar hún varð aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Austurlands. Hún var skipuð í embætti héraðsdómara og dómstjóra við Héraðsdóm Austurlands árið 2011 en árið 2018 fluttist hún í Héraðsdóm Reykjavíkur og hefur verið dómari þar síðan fyrir utan að hún var settur landsréttardómari í um sex mánaða skeið árið 2021.Hún hefur verið settur varadómari í Hæstarétti í fjórum málum og verið dómandi við Endurupptökudóm frá því í febrúar 2025. Hildur hefur sinnt stundakennslu í stjórnsýslurétti við lagadeild Háskóla Íslands í um fjögurra ára skeið og setið í áfrýjunarnefnd ágreiningsmála á kirkjulegum vettvangi frá árinu 2016 og setið í stjórn Dómarafélags Íslands. Þá hefur hún tekið sæti í nokkrum málum hjá kærunefnd útboðsmála og verið skipuð í nefnd dómstólasýslunnar um réttarfar og skilvirkni dómstóla.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Dómstólar Stjórnsýsla Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira