Svona verður dagskráin á Menningarnótt Áróra L Davíðsdóttir skrifar 20. ágúst 2026 09:01 Myndin er frá Bylgjutónleikum Menningarnætur árið 2022. Haldið verður hátíðlega upp á afmæli Reykjavíkurborgar á Menningarnótt laugardaginn næstkomandi, 22. ágúst. Gestir og gangandi geta sótt ríflega fjögur hundruð viðburði á borð við bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri setur hátíðina formlega klukkan 12:30 hjá DJ Margeiri á Klappastíg og boðið verður upp á afmælisköku í tilefni dagsins. Reykjavíkurborg fékk kaupstaðarréttindi þann 18. ágúst 1786 og er því haldið upp á 240 ára afmæli höfuðborgarinnar á laugardaginn næstkomandi. Hátíðarsvæðið teygir sig frá Lönguhlíð í Austurbæ, Hagatorgi í Vesturbæ og út á Granda. Í samráði við lögreglu verður hluti miðborgarinnar lokaður fyrir akandi umferð til að tryggja öryggi gesta. Reykjavíkurmaraþonið verður að sjálfsögðu á sínum stað en þegar hafa tæp fjórtán þúsund skráð sig til leiks. Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, ræsir hlaupið klukkan 08:15. Sjá nánar: Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Tónlistin skipar stóran sess á Menningarnótt Bylgjan verður með fjörutíu ára afmælistónleika í Hljómskálagarðinum en þar koma fram Birgitta Haukdal, Friðrik Dór, Bandmenn, Stefán Hilmarsson, Kristmundur Axel, Erna Hrönn, Á móti sól og FM95BLÖ. Að auki verða matarvagnar á staðnum fyrir svanga gesti. Dagskrá hefst klukkan 18 en einnig verða tónleikarnir í beinu streymi hér á Vísi. Á Tónaflóði á Arnarhóli í ár stígur einvala lið tónlistarfólks á stokk en tónleikarnir hefjast klukkan 19:00. Fram kemur tvíeykið Jói Pé og Króli, ásamt leynigestum, ísfirska tónlistarkonan Árný Margrét, rokkbandið Spacestation, popparinn og Eurovision-farinn Daði Freyr og vinirnir Páll Óskar og Benni Hemm Hemm. Flugeldasýning hefst að tónleikunum loknum, klukkan 22:00. Þá verður tónlistarhátíðin Ingólfsfest haldin í fyrsta sinn á Ingólfsstræti frá klukkan 12 til 20. Fram koma DJ Eisi, Inspector Spacetime, ISSI, NUSSUN og HÚGÓ, ásamt fleirum. Plötusnúðurinn DJ Margeir hefur í rúm tíu ár haldið blokkarpartýið MOMENT á Klapparstíg á Menningarnótt. Tónleikarnir hafa alltaf verið ókeypis en í ár verða þeir haldnir til styrktar Minningarsjóði Bryndísar Klöru og gestir hvattir til að styrkja sjóðinn. Þá mun Margeir jafna öll framlög sem berast, allt að 500 þúsund krónum. Bílskúrshljómsveitir landsins koma fram í Gamla bíó og fönk, blús, popp, rokk og fleira. Áhugafólk í bland við reynslubolta í tónlist stígur á stokk en hátíðin var fyrst haldin árið 2015. Hjartatorg verður gætt lífi en þar verður haldið blokkarpartý. Fram kemur fjöldi tónlistarfólks, meðal annars danstríóið Inspector Spacetime, rokk- og raftónlist Junos Paul og akureyrski rapparinn Saint Pete. Kramhúsið og Kramber standa fyrir hinu árlega KramKarnivali á horni Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis. Yfir daginn verður fatamarkaður og dansatriði og plötusnúðar halda partýinu gangandi fram á kvöld. Bessastaðir, söfn borgarinnar og götumarkaðir Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason bjóða gestum heim í opið hús á Bessastöðum frá klukkan 15 til 18. Gestir eru hvattir til að fara að dæmi forseta og klæðast þjóðbúningi í tilefni dagsins eða klæðast öðrum þjóðlegum klæðnaði. Víða verður lengdur opnunartími og ókeypis inn á söfn borgarinnar. Meðal þeirra eru handritasýning í Eddu- húsi íslenskunnar og Borgarsögusafn Reykjavíkur sem samanstendur af Landnámssýningunni í Aðalstræti, Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófinni og Sjóminjasafninu í Reykjavík úti á Granda. Hið geysivinsæla spunamaraþon Improv Ísland fer fram í ellefta skiptið í Þjóðleikhúskjallaranum og boðið verður upp á sýningar á hálftíma fresti frá klukkan 15 til 22. Fyrir utan Kjarvalsstaði verður haldið Menningarmótið í bekkpressu en þar keppa ungir sem aldnir um Menningarbikarinn. Fjölbreytt dagskrá verður fyrir börn í Borgarbókasafninu í Grófinni en þar verður boðið upp á frumskógarlegó, ratleiki, blómakransagerð, salsadans og margt fleira. Víða verða götumarkaðir þar sem ýmislegt góss verður til sölu. Þar má nefna árlegan risaplötumarkað Óla á Þórsgötu 21, fatamarkað Góða hirðisins í bílakjallaranum á Bergstaðastræti og lista- og handverksmarkað á Lækjartorgi. Enn ítarlegri dagskrá Menninarnætur og tímasetningar má finna hér.
Tónlist Menningarnótt Reykjavík Menning Hlaup Umferð Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira