Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar 17. ágúst 2026 22:00 Eftir nokkra daga tek ég aftur á móti nemendum í einhverfudeild grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þar hef ég starfað síðustu tvö skólaár og fundið starfsvettvang þar sem menntun mín sem tómstunda- og félagsmálafræðingur nýtist afar vel. Samt endurspeglast sú fagþekking hvorki í þeim starfstitlum né launakjörum sem mér standa til boða. Samkvæmt starfslýsingu minni er ég „fagmaður í einhverfudeild“ og hlutverk mitt felst fyrst og fremst í að efla færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í athöfnum daglegs lífs. Ég starfa náið með kennara og öðru starfsfólki deildarinnar og tek þátt í að styðja nám og þroska nemenda, bæði í skipulögðu skólastarfi og daglegum aðstæðum. Markmiðið er að styrkja nemendur og gera þeim kleift að taka þátt í almennu skólastarfi þegar það er mögulegt. Starfið er bæði krefjandi og gefandi, en það sem skiptir mig mestu máli er að ég hef fundið starfsvettvang þar sem menntun mín nýtist með skýrum og markvissum hætti. Fagþekking innan skólastarfs Ég er tómstunda- og félagsmálafræðingur með M.Ed.-gráðu í faginu. Yfirleitt eru það þroskaþjálfar eða sérkennarar sem starfa í einhverfudeildum og því kemur mér ekki á óvart að mörgum sé óljóst hvernig menntun tómstunda- og félagsmálafræðinga nýtist í slíku starfi. Nafnið tómstundafræði vísar enda fyrst og fremst til menntunar sem á sér stað utan hins hefðbundna skólastarfs, í frítíma barna og ungmenna. Menntunin hefur hins vegar nýst mér afar vel í starfi með einhverfum börnum. Þar má meðal annars nefna leikinn sem námsverkfæri. Leikur býður upp á fjölmörg námstækifæri, skapar jákvætt námsumhverfi og byggir á forvitni og uppgötvunargleði barna. Ég get til dæmis nýtt leik til að kynna nýtt námsefni sem við vinnum síðan áfram með í skipulögðum kennslustundum. Tómstundafræðin leggur einnig ríka áherslu á styrkleika og áhugamál barna og hvernig megi nýta þau til náms og þroska. Í mínu starfi getur það falist í því að samþætta uppáhaldsleikföng eða áhugasvið barns kennslunni. Tússpennar og hvít tafla geta orðið hluti af stærðfræðikennslu og uppáhaldstónlist barns nýst til að skapa ró, draga úr streitu eða stýra orku í kennslustofunni. Mikilvægast er þó það sem tómstundafræðin hefur kennt mér um tengsl og traust. Traust samband við barnið er mikilvæg forsenda náms. Þess vegna legg ég áherslu á að átta mig á líðan barnsins, mynda sterk og jákvæð tengsl, byggja upp samskipti og skapa fyrirsjáanleika í daglegu starfi. Leikur, styrkleikamiðuð nálgun og tengslamyndun eru því ekki tilviljunarkenndar aðferðir heldur hluti af þeirri fagþekkingu sem ég öðlaðist í námi mínu. Ólík fagþekking – sameiginlegt verkefni Í daglegu starfi vinnum við náið saman þvert á ólíkar fagstéttir. Kennarar, sérkennarar, þroskaþjálfar og tómstunda- og félagsmálafræðingar koma með ólíka menntun, reynslu og fagleg sjónarhorn. Með því að deila þekkingu og leita sameiginlegra lausna nýtum við styrkleika hvers annars og getum betur mætt fjölbreyttum þörfum barnanna. Þegar kemur að stöðu minni innan teymisins er eðlilegt að horfa sérstaklega til þroskaþjálfa. Þroskaþjálfafræði og tómstunda- og félagsmálafræði eru ólík fög en eiga þó margt sameiginlegt hvað varðar viðfangsefni og áherslur. Bæði eru kennd við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og leggja meðal annars áherslu á þátttöku, sjálfstæði, félagsfærni og velferð einstaklingsins. Því er ekki tilviljun að ég ber stöðu mína fyrst og fremst saman við stöðu þeirra. Samanburðurinn snýst ekki um að gera fagstéttirnar eins, heldur um að við komum með ólíka fagþekkingu inn í sama starfsumhverfi, þar sem viðfangsefni faganna skarast að mörgu leyti og við getum sinnt sambærilegum verkefnum og borið sambærilega ábyrgð. Sambærileg ábyrgð – ólík kjör Þrátt fyrir þetta er mikill munur á því hvernig skólakerfið metur fagstéttirnar tvær. Sem tómstunda- og félagsmálafræðingi standa mér hvorki sömu starfstitlar né sambærileg launakjör til boða og þroskaþjálfum sem starfa við hlið mér í einhverfudeild. Tómstunda- og félagsmálafræðingar eiga ekkert eitt stéttarfélag sem semur sérstaklega um kjör okkar. Í mínu tilviki stóð valið á milli starfstitilsins „sérfræðingur“ samkvæmt samningi starfsmannafélags sveitarfélagsins og „leiðbeinandi 3“ samkvæmt samningi Kennarasambands Íslands. Hvorugur titillinn endurspeglar í raun starfið sem ég sinni. Launakerfin eru ólík; í öðru eru grunnlaunin hærri en í hinu eru fleiri starfsár metin til launa. Þegar upp er staðið verða launin þó mjög svipuð. Launakjör mín eru engu að síður verulega lakari en launakjör þroskaþjálfa sem starfa við hlið mér og sinna að mörgu leyti sambærilegum verkefnum. Með þessum samanburði er ég ekki að gera lítið úr störfum þroskaþjálfa. Þvert á móti ber ég mikla virðingu fyrir menntun þeirra og fagþekkingu. Spurning mín er hvers vegna skólakerfið metur fagþekkingu þessara tveggja stétta með svo ólíkum hætti, þótt viðfangsefni okkar skarist að mörgu leyti innan sama starfsumhverfis. Allt síðasta skólaár vann ég að því að vekja athygli á þessu misræmi og fann fyrir miklum skilningi og stuðningi yfirmanna minna. Sú vinna skilaði þeim árangri að frá áramótum fékk ég sérstakt launaálag sem átti að endurspegla betur ábyrgð mína og faglegt framlag. Sú leiðrétting entist þó skammt. Nokkrum mánuðum síðar tilkynnti launadeild sveitarfélagsins mér að vegna launaálagsins ætti ég ekki lengur rétt á greiðslum fyrir ákveðna yfirvinnu og önnur aukaverkefni sem ég hafði áður fengið greidd. Launaálagið hækkaði þannig föst laun mín, en á móti féllu niður greiðslur fyrir vinnuframlag sem áður hafði verið greitt sérstaklega. Niðurstaðan er mótsagnakennd: Ég fékk launaálag til að viðurkenna betur ábyrgð mína og faglegt framlag, en þegar upp var staðið voru heildarlaun mín lægri en áður. Fyrir mig vekur þessi reynsla stærri spurningu um stöðu tómstunda- og félagsmálafræðinga innan skólakerfisins. Ef menntun okkar nýtist þar vel en starfstitlar og launakjör endurspegla það ekki, hversu raunhæft er þá að ætlast til þess að fagfólk með þessa menntun velji skólana sem framtíðarstarfsvettvang? Fjölbreyttar þarfir – fjölbreytt fagþekking Undanfarin misseri hefur mikið verið rætt um hvernig íslenskt skólakerfi geti betur mætt börnum með fjölbreyttar og flóknar stuðningsþarfir. Nýleg greining á sérskólaúrræðum á höfuðborgarsvæðinu bendir til vaxandi þarfar fyrir fjölbreytt úrræði fyrir börn með umfangsmiklar og ólíkar stuðningsþarfir. Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á að í þjónustu við börn með fjölþættan vanda skorti meðal annars heildstæð úrræði, þekkingu, reynslu og mannafla. Ég tel að tómstunda- og félagsmálafræðingar geti lagt þar mikilvægt af mörkum. Menntun okkar leggur ríka áherslu á þátttöku, tengslamyndun, styrkleika einstaklingsins og óformlegt nám. Sú fagþekking getur bætt við þekkingu annarra fagstétta og styrkt þverfaglegt samstarf innan skólanna. Ef skólakerfið á að vera raunhæfur starfsvettvangur fyrir tómstunda- og félagsmálafræðinga þarf framlag okkar að vera viðurkennt. Sú viðurkenning þarf að birtast í stöðu okkar innan skólakerfisins og í starfstitlum og launakjörum sem endurspegla menntun, ábyrgð og faglegt framlag. Annars eigum við á hættu að missa úr skólunum fagfólk sem býr yfir þekkingu sem skólakerfið þarf á að halda. Höfundur er tómstunda- og félagsmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einhverfa Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Kjaramál Grunnskólar Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun