Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Kjartan Kjartansson skrifar 19. ágúst 2026 14:49 Á meðal þess sem hægt að veðja um á Polymarket er nákvæm dagsetning vopnahlés Bandaríkjanna og Írans. Vísir Fjarskiptafyrirtæki í Danmörku hafa lokað fyrir aðgang að veðmálasíðunni Polymarket og fleiri sambærilegum síðum. Síðan er umdeild enda er þar meðal annars hægt að veðja á hvenær þekkt fólk deyr og náttúruhamfarir.
Danska ríkisútvarpið segir að dómstóll í Frederiksberg hafi skipað fyrir um að aðgangi að Polymarket og fleiri veðmálasíðum yrði lokað að kröfu eftirlitsstofnunar með happdrættum. Stofnunin telur síðurnar brjóta dönsk lög um happdrætti, að því er segir í frétt danska ríkisútvarpsins. Síðurnar hafa verið horn í síðu danskra stjórnvalda. Ane Halsboe-Jørgensen, þáverandi skattamálaráðherra, sagði slíka starfsemi ekki eiga heima í Danmörku og vildi kanna hvort fýsilegt væri að loka á hana fyrr á þessu ári. Eftirmaður hennar, Jakob Engel-Schmidt, segist ánægður með að aðgangi að Polymarket hafi verið lokað. „Ef þú vilt taka þátt í dönskum markaði verður þú að fara að dönskum lögum. Þú getur ekki beint viðskiptum þínum að dönskum neytendum og grætt pening á þeim ef þú telur dönsk lög ekki eiga við um þig,“ sagði ráðherrann. Ósiðleg starfsemi Polymarket er umdeilt víðar en í Danmörku. Ólíkt hefðbundnum veðmálasíðum þar sem veðmangarar bjóða upp á veðmál með líkum sem þeir ákvarða veðja notendur Polymarket gegn hver öðrum. Hægt er að veðja á nánast allt undir sólinni á vefsíðunni, þar á meðal hvenær fólk deyr, stríð og aðrar hörmungar. Bandarískur hermaður var handtekinn fyrr á þessu ári en hann notaði innherjaupplýsingar um hernaðaraðgerðir Bandaríkjastjórnar í Venesúela til þess að veðja á síðunni. Engel-Schmidt, skattamálaráðherra, telur viðskiptalíkan Polymarket ósiðlegt. „Við erum að tala um fólk sem glatar lífi sínu, um fjölskyldur sem missa ástvini, um stríð sem rústa heilu samfélögunum. Svo sest einhver niður og segir: hvernig væri að við gætum veðjum á hvenær það gerist? Það er alveg klikkað. Mannslíf er ekki happdrættismiði,“ segir ráðherrann. Polymarket er aðgengilegt á Íslandi þó að starfsemin sé ekki lögleg hér á landi. Íslensk stjórnvöld hafa ekkert aðhafst gegn erlendum veðmálasíðum sem hafa þótt styrkt alls kyns áhrifavalda, íþróttamenn og fjölmiðlamenn undanfarin ár.
Danmörk Fjárhættuspil Fjarskipti Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira