„Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Lovísa Arnardóttir skrifar 20. ágúst 2026 07:58 Forsetahjón heilsa eistnesku forsetahjónunum á Ráðhústorginu í Tallinn. Forseti Íslands Forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason hófu þriggja daga ríkisheimsókn til Eistlands í gær. Gestgjafar þeirra eru forseti Eistlands, Alar Karis, og eiginkona hans, Sirje Karis. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja góð tengsl Íslands og Eistlands. „
Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu og hér finnum við sterkt fyrir vináttu og gagnkvæmri virðingu þjóðanna og einlægu þakklæti þeirra í okkar garð. Fram undan eru dagar samtals um það sem sameinar okkur og skiptir framtíðina máli – frelsi, lýðræði, öryggi, menntun, tækifæri og ógnanir sem felast í nýrri tækni,“ sagði Halla að loknum fundum í gær. Lúðrasveit lék þjóðsöngva beggja landa.Forseti Íslands Í tilkynningu forsetaembættisins um heimsóknina kemur fram að Halla og Björn hafi byrjað fyrsta daginn á formlegri móttökuathöfn á Ráðhústorginu í Tallinn. Frá fundi Höllu og Alar. Forseti Íslands „Lúðrasveit lék þjóðsöngva beggja landa og í kjölfarið voru opinberar sendinefndir kynntar fyrir forsetum og mökum þeirra. Að því loknu gengu forseti og fylgdarlið að Frelsistorginu en þar var lagður blómsveigur að minnismerki um sjálfstæðisbaráttu,“ segir í tilkynningu forsetaembættisins um heimsóknina. Halla heilsaði fólki. Í bakgrunni má sjá Loga Einarsson, ráðherra háskóla, menningar og nýsköpunar. Forseti Íslands Eftir það héldu þau í embættisbústað forseta Eistlands þar sem þau skiptust á gjöfum og svo fundaði Halla Tómasdóttir með Alar Karis í um klukkutíma. Að því loknu tóku þau þátt í viðskiptaþingi sem fór fram í tengslum við heimsóknina. Forseti ásamt eistneska forsætisráðherranum á svölum forsætisráðuneytisins. Forseti Íslands Eftir það sátu forseti, ráðherra og fylgdarlið hádegisverðarfund í boði forsætisráðherra Eistlands, Kristen Michal, í forsætisráðuneytinu. Að loknum hádegisverði var haldið í þinghúsið í Tallinn þar sem þingforsetinn Lauri Hussar tók á móti hópnum. Í kjölfarið átti Hussar, ásamt eistneskum þingmönnum og embættismönnum, fund með forseta og íslensku sendinefndinni. Frá heimsókn Björns Skúlasonar og Sirje Karis í TFTAK. Forseti Íslands Um miðbik dagsins tók Björn Skúlason þátt í sérstakri dagskrá ásamt frú Karis og fylgdarliði. Þau héldu fyrst í heimsókn í TFTAK frumkvöðlasetrið þar sem unnið er að nýsköpun í matvælaframleiðslu og líftækni. Þaðan héldu þau í Niguliste-safnið sem er helgað eistneskri sögu, listum og byggingarlist. Safnið er í Kirkju heilags Nikulásar sem er eitt af kennileitum Tallinn. Síðasti viðkomustaður þeirra var Anni Arro Studio, vinnustofa matgæðingsins Anni Arro sem rekið hefur vinsæla veitingastaði og er þekkt fyrir matreiðslubækur- og þætti sína. Dagskránni lauk svo á hátíðarkvöldverði í boði eistnesku forsetahjónanna í Arvo Pärt-menningarmiðstöðinni í Laulasmaa. Fram kom í tilkynningu um heimsóknina að annar dagur heimsóknarinnar, fimmtudagurinn 20. ágúst, sé Dagur endurreisnar sjálfstæðis Eistlands. Mun forseti Íslands taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni þess að 35 ár eru liðin frá þeim sögulegu tímamótum. Meðal dagskrárliða er fánahylling í Kuberneri-garðinum og heimsókn í sjónvarpsturninn í Tallinn sem varð tákn um baráttu Eistlendinga gegn sovéskum hersveitum. Forsetahjón og fylgdarlið sækja einnig hátíðarfund eistneska þingsins og hóps eftirlifandi stjórnmálamanna sem samþykktu sjálfstæðisyfirlýsinguna árið 1991. Forseti Íslands flytur þar ávarp ásamt formanni hópsins, forseta Eistlands og þingforsetum Eystrasaltslandanna þriggja. Hún mun einnig ávarpa gesti í árvissri móttöku sem Eistlandsforseti býður til í Rósagarðinum við forsetahöllina um kvöldið. Dagskrá heimsóknarinnar lýkur svo á morgun, föstudaginn 21. ágúst. Um morguninn heimsækja forsetahjón og fylgdarlið menntaskóla sem nýtir nýstárlegar kennsluaðferðir tengdar gervigreind. Einnig verða þau viðstödd hátíðlega athöfn á Íslandstorginu í Tallinn laust eftir hádegi.
Forseti Íslands Eistland Halla Tómasdóttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira