Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. ágúst 2026 10:26 Nýjar höfuðstöðvar verða reistar á svæði í neðra hægra horni myndarinnar. Faxaflóahafnir Faxaflóahafnir hyggjast reisa nýjar höfuðstöðvar sínar nærri Skarfabakka við Sundahöfn. Auglýst hefur verið forval um þátttöku í lokuðu útboði á hönnun nýs Hafnarhúss en með framkvæmdinni verður sameinuð meginstarfsemi á einum stað.
Húsið mun rísa þar sem nú er bílastæði, í nálægð við Skarfaklett og flotbryggjuna þaðan sem Viðeyjarferjan siglir. Húsið mun rísa í nálægð við hina nýopnuðu Vör, miðstöð fyrir farþega skemmtiferðaskipa sem leggja að við Sundahöfn. Ráðgert er að húsið verði um 3.000 fermetrar og hýsi skrifstofu- og þjónustustarfsemi Faxaflóahafna ásamt sérhæfðri vinnu- og verkstæðisaðstöðu. Í tilkynningu segir að markmiðið sé að skapa nútímalegt og sveigjanlegt starfsumhverfi sem efli samstarf og stytti boðleiðir. Forvalið nær til fullnaðarhönnunar hússins, þar á meðal arkitekta-, verkfræði- og lóðarhönnunar. Að loknu forvali verða allt að fimm teymi valin til þátttöku í lokuðu hönnunarútboði. Segir í tilkynningunni að starfsfólk Faxaflóahafna sinni daglegum verkefnum víða, bæði á sjó og landi, á starfssvæðum félagsins í Reykjavík, á Grundartanga og Akranesi og í Borgarnesi. Aðsetur starfsfólks sé í dag að mestu leyti á tveimur meginstarfsstöðvum í höfuðborginni, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og Bækistöðinni við Fiskislóð á Granda, sem nú sé fyrirhugað að sameina í nýju Hafnarhúsi. Starfsfólk Faxaflóahafna mun fá að njóta óviðjafnanlegs útsýnis úr nýja Hafnarhúsinu, á Skarfaklett, út að Viðey og út á sundin blá í átt að miðborg Reykjavíkur. Faxaflóahafnir Við hönnun verður lögð áhersla á vandaðan arkitektúr, gott starfsumhverfi, sveigjanleika og skýrt skipulag, auk umhverfisvænna lausna og sjálfbærni, segir enn fremur í tilkynningunni. Stefnt sé að Svansvottun byggingarinnar. Faxaflóahafnir seldu Reykjavíkurhöfn hlut sinn í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu árið 2021 en húsið hefur um langt skeið hýst Listasafn Reykjavíkur.
Reykjavík Hafnarmál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira