Golf

„Auð­vitað var auka hjart­sláttur“

Aron Guðmundsson skrifar
Dagbjartur Sigurbrandsson, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi
Dagbjartur Sigurbrandsson, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi Vísir/Bjarni

Ríkjandi Ís­lands­meistari í golfi síðustu tveggja ára, Dag­bjartur Sigur­brands­son er stoltur af því að hafa tekist að verja titilinn stóra á heima­velli. Hann stefnir langt í íþróttinni og slær ekkert af á næstunni. 

Dag­bjartur er nú tvöfaldur meistari og titilvörn hans gekk eins og í sögu á hans heima­velli, Korpúlfs­staða­velli. Dag­bjartur hefur alist stein­snar frá vellinum og því um afar sér­stakan áfanga að ræða.

„Það var virki­lega gaman. Ég er stoltur af mér fyrir að hafa náð því, sér­stak­lega á heima­velli. Að ná að verja titilinn var mjög sætt. Auðvitað var auka hjartsláttur á fyrsta teig. En eftir fyrsta teig­höggið leið manni bara nokkuð vel og náði að spila sitt golf. Þá kannski tók maður frekar þá stefnuna að þessu að ná bikarnum aftur fremur en að verja hann. Það var gaman að ná því.“

Hvort var erfiðara. Að sækja titilinn í fyrsta skiptið eða að verja hann?

„Örugg­lega fyrsta skiptið. Að upp­lifa það keppa þá við hörku spilara eins og Axel Bóasar og Aron Snæ í loka­holli. Reynslan af því hjálpaði mér mikið í þessu móti. Að halda áfram að sækja, gefa ekkert eftir.“

Með augun á PGA mótaröðinni

Ís­lands­meistarinn mátti ekkert vera að því að slaka á því næsta morgun eftir að hafa varið titilinn hélt hann út til Svíþjóðar og tók þátt á móti þar.

„Mótið var í Mal­mö og aðstæðurnar allt öðru­vísi, hita­stigið, völlurinn harðari og flatirnar hraðari. Maður þurfti því að vera mjög fljótur að aðlagast og gíra sig upp í annað mót. Ég náði að tækla það vel og var ánægður með mótið.

Ég er að klára Nor­dic mótaröðina núna og fram­undan er úrtökumót fyrir Evrópumótaröðina sem byrjar áttunda apríl í Þýska­landi. Það eru þrjú stig og maður vill bara komast alla leið.

Fyrsta árið eftir háskólann er maður alltaf að reyna byggja upp sinn eigin feril. Ég vil enda á PGA mótaröðinni eða Evrópumótaröðinni. Það er mark­miðið og hefur alltaf verið draumurinn.“



Viðtalið við Dag­bjart má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×