Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Lovísa Arnardóttir skrifar 21. ágúst 2026 14:53 Kvennalandslið Kotrusambands Íslands f.h. Gyða Björg Sigurðardóttir, Kolbrún Þóra Löve, Þura Stína, Frederikke Bang. Á myndina vantar Kareni Ósk Hafliðadóttur sem er búsett í Danmörku. Laufey Ósk Fyrsta kvennalandslið Íslands í kotru (backgammon) heldur í dag opna lokaæfingu fyrir heimsmeistaramót landsliða í London í Kaffi Dal, Sundlaugavegi 34. Landsliðskonurnar ætla á viðburðinum að kenna gestum, börnum og fullorðnum, að spila spilið. Viðburðurinn er einnig fjáröflun fyrir keppnina.
Kotrusamband Íslands sendir í fyrsta sinn kvennalið til keppni fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í kotru, WBGF World Championships, sem fram fer í London 24.–30. ágúst. Alls senda 28 þjóðir landslið til keppni og þar af senda 16 þeirra kvennalið. Í tilkynningu kemur fram að íslenska landsliðið skipi ellefu spilarar sem keppa í opnum flokki og kvennaflokki, þar af fimm konur sem mynda fyrsta kvennalandslið Íslands á heimsmeistaramóti. Gyða Björg Sigurðardóttir, landsliðskona í kotru, segir liðið halda út á sunnudag og keppni hefjist á mánudag. Hún segir fjáröflunina helst fyrir mótsgjaldinu, flugi og gistingu. Hún segir ánægjulegt að fyrsta íslenska kvennaliðið taki þátt í ár. Liðið hafi undirbúið sig á æfingum, keppnum og rýnt í spilið. „Nýgræðingar eins og ég eiga margt eftir ólært en þeir sem eru fremstir í okkar hópi eru þvílíkir gúrúar, það er ótrúlegt hversu mikið er hægt að fara á dýptina. Það er eiginlega eins og í skák, með smá heppni,“ segir hún en ólíkt skák er spilið spilað með teningum. Ekki lengur bara strákaspil Hún segir spilið oft hafa verið spilað á bar og hafi í gegnum tíðina verið „strákaspil“ en það sé að breytast. Hún hvetur fólk til að koma á Kaffi Dal síðdegis í dag og prófa með landsliðinu. Á viðburðinum verður kennsla fyrir byrjendur. Reyndir spilarar eru sérstaklega hvattir til að mæta með sín eigin borð og taka léttan leik við landsliðskonurnar og aðra gesti. Frjáls framlög eru velkomin og renna óskipt til að styrkja ferð kvennalandsliðsins. Kotrusambandið leitar jafnframt bakhjarla til að gera keppnisferðina mögulega. Nánar um viðburðinn og styrktarleiðir hér.
Borðspil Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira