Erlent

Nokkrir látnir eftir á­rekstur lögreglubíls

Jón Þór Stefánsson skrifar
Áreksturinn varð á A66 þjóðveginum í Bretlandi.
Áreksturinn varð á A66 þjóðveginum í Bretlandi. Getty

Nokkrir eru látnir eftir árekstur sem varð milli lögreglubíls og eins til tveggja annarra bíla nálægt borginni Middlesbrough í Bretlandi í nótt.

BBC hefur eftir talsmanni viðbragðsaðila að nokkrir hafi látist á vettvangi.

„Því miður, þrátt fyrir hröð viðbrögð allra sem hingað komu, lést einhver fjöldi fólks á vettvangi.“

BBC segir áreksturinn hafa orðið milli þriggja bíla en Sky News talar um tveggja bíla árekstur.

Tala látinna liggur ekki fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×