Lífið

Myndaveisla: Lita­gleði og lög­regla á Tóna­flóði á Arnarhóli

Freyja Þórisdóttir skrifar
Arnarhóll var óvenju litafagur í gær, á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst, þar sem fjölmargir gestir Tónaflóðs klæddust regnjökkum í frumlitunum.
Arnarhóll var óvenju litafagur í gær, á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst, þar sem fjölmargir gestir Tónaflóðs klæddust regnjökkum í frumlitunum. Vísir/Viktor Freyr

Gríðarlegur fjöldi fólks var samankominn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi þegar Menningarnótt fór fram með tilheyrandi gleði og glaum. Það voru ríflega fjögur hundruð viðburðir á dagskrá en þar má meðal annars nefna bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð.

Hið árlega Tónaflóð Rásar 2 fór svo fram á Arnarhóli um kvöldið en meðal þeirra sem komu fram á tónleikunum voru Jói P. og Króli, Árný Margrét, Daði Freyr, Benni Hemm Hemm og Páll Óskar. Að loknum tónleikum gátu gestir dáðst að flugeldasýningu líkt og síðust ár.

Ljósmyndarar Vísis voru svo sannarlega viðstaddir hátíðarhöldin en hér fyrir neðan má líta á nokkrar af myndunum sem skiluðu sér í hús eftir að Menningarnótt var slitið að þessu sinni.

Meðal þeirra fjölmörgu tónlistarmanna sem stigu á stokk í gærkvöldi var Björgúlfur Jes Einarsson, söngvari og gítarleikari, en hann tryllti lýðinn ásamt félögum sínum í hljómsveitinni Spacestation. Vísir/Viktor Freyr
Það fór vart fram hjá neinum að lögreglan sinnti viku eftirliti í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt en í dagbók morgunsins kom fram að talsvert hefði verið um ungmennadrykkju.Vísir/Viktor Freyr
Hvar er Valli?Vísir/Viktor Freyr
Það stytti upp þegar leið á kvöldið en þrátt fyrir rigningu og rok fyrri hluta tónleikanna var mikill fjöldi fólks samankominn við sviðið.Vísir/Viktor Freyr
Mikill erill var hjá lögreglunni í miðbæ Reykjavíkur í gær og í nótt, á sjálfa Menningarnóttina, en alls voru 244 mál bókuð í kerfum lögreglu, sem er heldur mikið.Vísir/Viktor Freyr
Á tónleikunum komu meðal annara fram JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm en barnakór söng með Palla í laginu Eitt af blómunum í lok tónaflóðs.Vísir/Viktor Freyr
Tónlistaratriði kvöldsins voru ekki af verri endanum. Á myndinni er hin glæsilega Árný Margrét.Vísir/Viktor Freyr
Sumir kusu að mæta í „matching“ regnfötum eins og unga fólkið myndi segja.Vísir/Viktor Freyr
Það var standandi partí á Austurvelli í gær.Vísir/Viktor Freyr
Elín Hall hefur komið víða að en hún lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á stóra sviðið í gær.Vísir/Viktor Freyr
Flestir, ef ekki allir, og frænkur þeirra kíktu við á Arnarhóli á Menningarnótt í gærkvöldi en tónleikarnir hófust klukkan 19:00 og þeim lauk um klukkan 22:00.Vísir/Viktor Freyr

Daði Freyr var á eldi í gærkvöldi en hann hefur komið víða fram í Bandaríkjunum og á stóran hóp erlendra aðdáenda.Vísir/Viktor Freyr
Sumarsmellurinn „Ástin dugir að eilífu“ með Unun og Páli Óskari var einn heitasti smellur landsins 1995 en hann var rifjaður upp á Menningarnótt í gær. Eflaust ákveðin nostalgía fyrir hluta áhorfenda.Vísir/Viktor Freyr

Tengdar fréttir

Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju

Lögregla hafði afskipti af á fjórða tug ungmenna vegna unglingadrykkju. Mikill erill var í miðbæ Reykjavíkur í gær vegna Menningarnætur en lögregla segir kvöldið og nóttina hafa gengið vel.

Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“

Þrátt fyrir að veðrið sé að mati margra ekki með besta móti má ætla að fjöldi fólks leggi leið sína niður í miðbæ Reykjavíkur í kvöld á Menningarnótt. Dagurinn hefur gengið eins og í sögu og er útlit fyrir að allt skipulag, götulokanir þar á meðal, hafi farið fram líkt og best væri á kosið. Áratuga reynsla spili inn í velheppnaða viðburði sem þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.