„Í lok dagsins þá eru þetta þrjú stig fyrir okkur og það er það eina sem skiptir máli“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 23. ágúst 2026 19:57 Stefan Ljubicic í baráttunni gegn KR Viktor Freyr/Vísir Keflavík vann gríðarlega öflugan og mikilvægan 1-0 sigur á liði ÍBV í 20. umferð Bestu deild karla sem hóf göngu sína í dag. Stefan Alexander Ljubicic skoraði sigurmark Keflavíkur. „
Geggjað að ná í þrjú stig en kannski aðeins heppnir því þeir fengu þarna dauðafæri fannst mér en bara 1-0 sigur á heimavelli og dýrmæt þrjú stig fyrir okkur“ sagði Stefan Alexander Ljubicic framherji Keflavíkur eftir sigurinn. „Við vorum flottir í fyrri hálfleik, náðum að spila og fengum góðar stöður en í seinni hálfleik átti ég þarna færi en eftir það ná þeir kannski aðeins að halda í boltann. Við vissum að þeir væru flinkir í því og kannski leyfum þeim að gera það“ „Í lok dagsins þá eru þetta bara þrjú stig fyrir okkur og það er það eina sem skiptir máli“ Keflavík átti öflugan fyrri hálfleik og hefði ekki verið ósanngjarnt ef munurinn hefði verið meiri í hálfleik. „Já og nei. Við vorum að komast í fínar stöður en við þurfum kannski aðeins að vera meira beinskeyttir en að vera bara 1-0 yfir var alveg nóg og við náðum svo að halda því út“ Það var ekki mikill munur á liðunum endilega í dag en Keflavík skoraði þó markið sem skildi á milli. „Helsti munurinn er að við náðum að skora eitt mark og þeir ekki. Þeir sýndu í seinni hálfleik og við sýndum í fyrri hálfleik en við náðum að klína inn markinu, það er svona munurinn“ Stefan Alexander Ljubicic skoraði eina mark leiksins eftir frábæra fyrirgjöf frá Eið Orra Ragnarssyni en þetta var ekki í fyrsta sinn sem þeir félagar tengja vel. „Ég elska að spila með Eið og ég veit nákvæmlega hvenær hann gefur boltann þannig ég varð bara að planta mér þarna, hann fer held ég aðeins í varnarmann fyrst þannig hann fer yfir varnarmanninn sem var á mér. Ég næ að tímasetja þetta vel og skalla þetta inn“ Keflavík tengdi í fyrsta sinn í sumar tvo sigurleiki saman en þeir unnu góðan sigur á Þór í síðustu umferð. „Fyrsta skipti sem að við náum að tengja og það er stórt að ná í sex stig í tveimur leikjum í röð. Við bara byggjum ofan á þetta, við eigum tvo úrslitaleiki eftir líka og við viljum vera þarna í topp sex“ Keflavík mætir FH í næstu umferð í Kaplakrika. „Það er á grasi líka sem að er fínt. Við töpuðum síðast á móti þeim hér sem var ósanngjarnt en við erum bara vel stemndir og sérstaklega eftir að hafa tengt tvo sigra í röð þannig við erum bara fullir sjálfstrausts og ætlum að halda því áfram“ sagði Stefan Ljubicic.
Keflavík ÍF Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira