Enski boltinn

Newcastle að fá miðjumann Man. City

Sindri Sverrisson skrifar
Nico Gonzalez er á förum frá Manchester City.
Nico Gonzalez er á förum frá Manchester City. Getty/Robbie Jay Barratt

Eftir að hafa selt Sandro Tonali og Bruno Guimaraes fyrir háar fjárhæðir í sumar er Newcastle að landa spænska miðjumanninum Nico González frá Manchester City.

Félagsskiptafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að munnlegt samkomulag sé í höfn á milli City og Newcastle um kaupverð. Það nemi 47 milljónum punda að viðbættri 3 milljóna punda aukagreiðslu.

González ku sjálfur samþykkur því að ganga í raðir Newcastle og taka þar við lykilhlutverki á miðjunni.

Þessi 24 ára gamli leikmaður kom til City rétt fyrir lok félagaskiptagluggans í byrjun árs 2025, frá Porto, fyrir 50 milljónir punda eða sama verð og hann verður nú seldur fyrir til Newcastle.

González hefur á einni og hálfri leiktíð með City aðeins verið í byrjunarliðinu í 26 deildarleikjum og hann var ónotaður varamaður í gær þegar liðið vann 2-1 endurkomusigur gegn Bournemouth í fyrstu umferð nýrrar leiktíðar.

City hefur þegar keypt miðjumanninn Elliott Anderson í sumar og er nú einnig að fá hinn unga Ayyoub Bouaddi frá Lille eftir að hann sló í gegn með Marokkó á HM í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×