Dönsk landsliðsstjarna dæmd Aron Guðmundsson skrifar 26. ágúst 2026 09:00 Allan Nielsen í leik með danska landsliðinu Vísir/Getty Allan Lund Nielsen, fyrrverandi leikmaður danska landsliðsins og Tottenham, hefur verið dæmdur fyrir að svíkja peninga undan skatti. Nielsen átti digra sjóði í aflandsfélagi í Panama.
Frá þessu er á miðlum DR núna í morgun en Nielsen hefur verið dæmdur til þess að greiða rúmar 5.5 milljónir danskra króna, því sem nemur rúmum 104 milljónum íslenskra króna, til danskra skattyfirvalda. Nielsen ætlar sér að áfrýja dómnum en í honum segir að danski landsliðsmaðurinn fyrrverandi hafi verið með um 18.7 milljónir danskra króna í aflandsfélaginu á Panama, eða því sem nemur rúmum 354 milljónum íslenskra króna. Eignir sem hann hefði átt að greiða skatt af í Danmörku. Málið á rætur sínar að rekja í Panamaskjölunum. En birting um ellefu milljón skjala með fjárhagsupplýsingum ríkra og valdamikilla einstaklinga víðs vegar að úr heiminum árið 2016 vörpuðu ljósi á hvernig þeir komu eignum undan yfirvöldum heima fyrir í aflandsfélögum í skattaparadísum eins og Panama og Jómfrúareyjum. Panamaskjölin höfðu meðal annars víðtæk áhrif hér heima á Íslandi og Ríkisstjórn Íslands á þeim tíma féll eftir að kom í ljós að þáverandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, og kona hans hefðu átt aflandsfélag á eyjunni Tortóla sem Mossack Fonseca útvegaði. Panamaskjölin teygðu einnig anga sína inn í danskt samfélag. Nafn Allan Lund Nielsen birtist þar meðal annars í tengslum við félagið Bight Inc. Allan er nú 55 ára gamall en á sínum knattspyrnuferli spilaði hann með liðum á borð við FC Kaupmannahöfn, Bröndby, Tottenham, Wolves og Watford. Þá lék hann 44 A-landsleiki fyrir danska landsliðið og skoraði í þeim leikjum 7 mörk. Alls fór Nielsen á þrjú stórmót með danska landsliðinu, EM árin 1996 og 2000 sem og HM árið 1998. Hann lagði knattspyrnuskóna á hilluna árið 2004.
Panama-skjölin Panama Danmörk Mest lesið Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Álftanes fagnaði eftir svakaleik í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn KR - Sindri 107-102 | Hetjuleg barátta dugði skammt Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sjá meira