Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Freyja Þórisdóttir skrifar 26. ágúst 2026 21:31 Gildrur hafa verið settar upp víðs vegar um flugvöllinn en samkvæmt umfjöllun BBC er verið að greina blóðsýni hinna smituðu til að ákvarða hvort þeir hafi smitast af einni moskítóflugu eða sex mismunandi moskítóflugum. Getty Óvenju mörg tilfelli þar sem fólk hefur smitast af malaríu hafa komið upp á einum stærsta flugvelli Þýskalands og þegar hafa í það minnsta tveir látist. Talið er að malarían hafi borist með moskítóflugu um borð í flugvél en það hefur fengist staðfest að sex flugvallarstarfsmenn, karlmenn í mismunandi stöðum og á mismunandi svæðum vallarins, hafi smitast.
Fjöldi erlendra miðla hefur fjallað um andlátin en í umfjöllun norska miðilsins NRK segir að heilbrigðisyfirvöld í Frankfurt hafi greint frá því að tveir þeirra sem smituðust í sumar séu látnir. Hinir fjórir fái meðferð á sjúkrahúsi. Hinir látnu þýskir Líkt og fyrr segir er talið að smitin hafi orsakast af sýktri moskítóflugu sem barst til Þýskalands með flugvél en í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið segir að fyrst hafi orðið vart við smit meðal starfshópsins í júlí. Haft er eftir talsmanni flugvallarrekstraraðilans Fraport að einn starfsmaður hafi látist af völdum sýkingarinnar, en lýðheilsuyfirvöld hafi síðar greint frá því að tveir af þeim sem smituðust hafi látist. Báðir hinna látnu eru þýskir. Gildrur hafa verið settar upp á flugvellinum og moskítóflugur sem nást verða greindar á rannsóknarstofu til að ákvarða tegund þeirra og uppruna, er fram kemur í frétt BBC um málið. Skiptir sköpum að bregðast hratt við smiti „Við höfum veitt öllum starfsmönnum ítarlegar upplýsingar og hvetjum þá til að leita til læknis ef þeir finna fyrir einhverjum einkennum,“ er haft eftir talsmanni Fraport. Malaría er sjúkdómur sem berst með biti sumra tegunda moskítóflugna og er aðallega að finna í hitabeltislöndum en langflest tilfelli sem upp koma eru í Afríkuríkjum sunnan Sahara-eyðimerkurinnar. Sýkingin, sem hægt er að koma í veg fyrir og lækna, stafar af sníkjudýri og smitast ekki milli manna. Einkennin eru mjög misalvarleg eftir tilfellum og geta verið væg eða lífshættuleg. Það að brugðist sé hratt og rétt við getur skorið úr um hvort fólk lifi af.
Moskítóflugur Flug Þýskaland Ferðalög Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira