Sport

For­seti Ólympíusambands Pól­lands hand­tekinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Piesiewicz hefur neitað sök.
Piesiewicz hefur neitað sök. Andrzej Iwanczuk/NurPhoto via Getty Images

Radoslaw Piesiewicz, forseti Ólympíusambands Póllands, var handtekinn í dag. Hann er grunaður um að hafa tekið ólöglega við greiðslum frá rafmyntafyrirtæki.

Rafmyntafyrirtækið Zondakrypto er aðalstyrktaraðili pólska Ólympíusambandsins en samningar þess efnis voru undirritaðir í fyrra. Ríkisstjórn Póllands hefur hafið rannsókn á Zondakrypto en fyrirtækið er grunað um að hafa tengsl við skipulagða glæpastarfsemi.

TVN24 í Póllandi greindi frá því í dag að Piesiewicz, forseti Ólympíusambandsins, hefði verið handtekinn sem hluti af rannsókninni og það hefur nú verið staðfest af dómsmálaráðherra Póllands, Waldemar Zurek.

Samkvæmt pólskum miðlum er Piesewicz sakaður um að hafa tekið við gjöfum, sem hann mátti ekki fá í sínu starfi. Þar eru nefndar peningagjafir frá forseta Zondakrypto, lúxusúr, ferðir til Mónakó og Bergamo, og miðar á fótboltaleiki.

Piesewicz, sem var áður forseti körfuknattleikssambands Póllands, neitar ásökunum. Óvíst er hvort hann verði ákærður en rannsókn málsins verður framhaldið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×