Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 19:32 Steinn Jóhannsson segir að skólasamfélaginu sé brugðið. Samsett Þrír einstaklingar komu inn í skólabyggingu Ölduselsskóla eftir hádegi í dag og beittu nemanda skólans ofbeldi. Sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg segir að skólasamfélaginu sé brugðið. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu. „
Við viljum upplýsa ykkur um að í dag kom upp alvarlegt atvik í unglingadeild þar sem þrír einstaklingar, sem ekki tilheyra nemendahópi Ölduselsskóla, komu inn í skólabygginguna og beittu nemanda ofbeldi og starfsmann sem kom að,“ segir í tölvupósti sem barst foreldrum og forráðamönnum nemenda í Ölduselsskóla í dag. Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Lögreglan hafi verið kölluð til og hafi hún málið til rannsóknar. Hann gat ekki veitt upplýsingar um líðan nemandans og starfsmannsins en staðfestir að sjúkrabíll hafi komið á vettvang. „Okkur er ótrúlega brugðið yfir þessu og við lítum þetta mjög alvarlegum augum,“ segir hann. „Við óskum fjölskyldunum alls hins besta en höfum ekki fengið fréttir af því.“ Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá slökkviliðinu barst tilkynningin um klukkan eitt í dag. Ekki lágu fyrir upplýsingar um hvort einhver hafi verið fluttur af vettvangi. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Í dagbók lögreglu var minnst á líkamsárás í sama hverfi og skólinn er í. Þar var tekið fram að meiðslin væru minniháttar en ekki er ljóst hvort um sé að ræða sama atvik. Þar kemur fram að kallað var til barnaverndar vegna ungs aldurs geranda. Standi frammi fyrir nýjum veruleika Steinn segir að lögreglan hafi fljótt verið kölluð til vegna málsins og að nokkrir meintra gerenda hafi verið yfirheyrðir. „Í kjölfarið var starfsmannafundur þar sem stjórnendur hittu allt starfsfólk skólans, sem var brugðið. Svo var fundað með efstu bekkjum og á morgun mun áfallateymi Reykjavíkurborgar koma inn í skólann,“ segir Steinn. Fundað verður aftur með nemendum í unglingadeildinni á morgun og verður sálfræðingur viðstaddur nemendunum til halds og trausts. Eyþór Víðisson, öryggisstjóri Reykjavíkurborgar, mun sömuleiðis koma og fara yfir stöðu mála með starfsfólki. Þá stendur til að herða öryggisráðstafanir í skólanum næstu vikurnar. Steinn bendir á að til standi að setja á laggirnar starfshóp til að skoða hvort almennt þurfi að fækka inngöngum í grunnskóla, eitthvað sem var bent á í úttekt ríkislögreglustjóra fyrir nokkrum árum. „Það er alveg ljóst að fólk getur komið af götunni inn í skóla. Það þarf að skoða þetta í stóra samhenginu,“ segir hann og tekur sem dæmi að í Ölduselsskóla séu ellefu inngangar. „Þetta er nýr veruleiki.“
Grunnskólar Skóla- og menntamál Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Sjá meira