Hlutfall virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði (CAPE) fyrir Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands (OMXI15) var um 20,8 í lok ágúst og hélst nær óbreytt frá júní. Verðlagning er áfram við miðgildi hlutfallsins frá árinu 2005. Hefðbundið hlutfall virðis og hagnaðar (VH-hlutfall), miðað við staðvirtan hagnað síðustu tólf mánaða, hækkaði á sama tíma úr 13,2 í 15,2. Þrátt fyrir það er hlutfallið enn undir sögulegu meðaltali frá árinu 1995 sem er um 16,8.
Raunhagnaður undirliggjandi félaga í Úrvalsvísitölunni lækkaði um 13% milli júní og ágúst á meðan raunvirði þeirra hækkaði um 0,5%. Samanburðurinn litast þó að hluta af breytingum á samsetningu Úrvalsvísitölunnar yfir tímabilið auk þess sem að hagnaður innan OMXI15 er samþjappaður, en Arion banki og Íslandsbanki mynda tæplega tvo þriðju flotleiðrétts hagnaðar vísitölunnar.
Fyrrgreind hlutföll gefa til kynna arðsemiskröfu til hlutafjár um 6,6% ef miðað er við hagnað síðustu tólf mánaða, en um 4,8% ef miðað er við hagsveifluleiðréttan hagnað. Ávöxtunarkrafa fimm ára óverðtryggðra ríkisskuldabréfa var 7,28% í lok ágúst og hélst gott sem óbreytt frá síðasta viðskiptadegi júnímánaðar, sem þýðir að krafan er áfram um 30 punktum yfir sögulegu meðaltali frá 1995. Verðbólguálag til sama meðaltíma lækkaði úr 4,1% í 3,9% frá júní til lok viðskipta í gær. Til samanburðar hækkaði ávöxtunarkrafa fimm ára bandarískra ríkisskuldabréfa úr um 4,2% í 4,5% á sama tímabili.
Verðbólga á Íslandi jókst úr 5,2% í júní í 5,6% í ágúst og er því áfram yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Nýjasta mæling verðbólgu í Bandaríkjunum nam 3,4%. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað 19. ágúst síðastliðinn að hækka meginvexti bankans um 25 punkta í 8,0%, enda þótt ný þjóðhagsspá bankans bendi til meira atvinnuleysis á þessu og næsta ári sem gæti við fyrstu athugun talist í andstöðu við áætlanir um minni framleiðsluslaka.
Hagstofa Íslands birti þjóðhagsreikninga í gær og sýna þeir að verg landsframleiðsla dróst saman um 1,1% að raunvirði á öðrum ársfjórðungi miðað við sama tímabil árið áður. Þrátt fyrir samdrátt á öðrum ársfjórðungi var hagvöxtur á fyrri helmingi ársins í megindráttum í samræmi við væntingar greiningaraðila, meðal annars eftir að hagvöxtur fyrsta ársfjórðungs var endurskoðaður. Endurskoðun Hagstofunnar á þjóðhagsreikningum áranna 2024 og 2025 gefur til kynna að umsvif hagkerfisins hafi verið þróttmeiri en áður var talið.
Til alþjóðlegs samanburðar hækkaði CAPE-hlutfall bandarísku S&P 500 vísitölunnar úr um 40,5 í júní í 41,2 í ágúst samkvæmt gögnum bandaríska hagfræðings Robert J. Shiller. CAPE-hlutfall OMXI15 er því áfram nær eigin sögulegu meðaltali, á meðan sambærilegt hlutfall S&P 500 er um tvöfalt hærra.
Höfundur er hagfræðingur.
Nánar um CAPE:
Frá árinu 2016 hefur hagfræðingurinn Brynjar Örn Ólafsson með aðstoð og gögnum frá Nasdaq Iceland tekið að sér að reikna og birta mánaðarlega opinberlega tímaraðir fyrir svokallað CAPE (e. Cyclically Adjusted Price to Earnings) fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI10 sem hliðstæðu við útreikninga Dr. Robert J. Shiller fyrir S&P 500 vísitöluna.
Hlutfallið sýnir virði Úrvalsvísitölunnar á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði þeirra félaga sem mynda vísitöluna. Hefðbundið VH-hlutfall miðast við hagnað síðastliðinna tólf mánaða og í þeim tilfellum sem miklar breytingar verða á hagnaði getur reynst vandasamt að átta sig á réttmæti verðlagningar. Í tilfelli CAPE er notast við verðlagsleiðréttan sögulegan hagnað sem getur gefið vísbendingu um réttmæti verðlagningar á móti hagnaði í eðlilegu árferði.
Fyrirvari: Þessi grein er eingöngu hugsuð til fræðslu og upplýsingagjafar og felur hvorki í sér fjárfestingartillögu né fjárfestingarráðgjöf, né heldur kaup- eða sölutilboð á verðbréfum eða öðrum fjármálagerningum. Greinin er einvörðungu ætluð til að varpa efnahagslegu ljósi á virði hlutabréfa í samhengi við hagsveifluna og tekur hvorki mið af markmiðum, áhættuvilja, fjárhagsstöðu né þörfum fjárfesta.
