„Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Lovísa Arnardóttir skrifar 2. september 2026 06:33 Skúli Tómas var tímabundið í leyfi frá störfum vegna málsins. Samsett Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir segir það sér að meinalausu að mál hans fari fyrir dóm. Skúli var árið 2019 ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Hann segir dómstóla ekki skilja læknisfræði og að allt sem hafi komið fram í málinu sé rangt.
Greint var frá því í gær að Landsréttur hefði ógilt frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjaness í máli læknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar. Ákæra á hendur honum fyrir manndráp fái því efnismeðferð. Skúli Tómas segir í færslu á Facebook-síðu sinni að það sé honum að meinalausu að málið fari fyrir dóm. „Þetta snýst nefnilega ekki um að sleppa heldur að sannleikurinn fái að koma fram með einum eða öðrum hætti. Núna mun það loksins gerast í þessu furðulega máli og það fyrir alþjóð. Það er mjög gott,“ segir hann í færslunni og að allt sem hafi komið fram í málinu sé rangt. Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Embætti landlæknis svipti hann lækningaleyfi árið 2021 þegar hann hafði stöðu grunaðs í fleiri andlátum á stofnuninni. Að endingu var aðeins ákært í einu máli. Héraðsdómur vísaði ákærunni frá dómi í júlí en héraðssaksóknari kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar. Landsréttur kvað svo upp úrskurð í kærumálinu þann 27. ágúst síðastliðinn. Skilji ekki læknisfræði Skúli Tómas fullyrðir einnig í færslunni sem hann birti á Facebook að allur málatilbúnaður hafi verið vanhugsaður og að ákæruvaldinu sé vorkunn að skilja ekki læknisfræði. „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi. Því til sönnunar eru frumgögn málsins, gagnreynd læknisfræði og tugir vitna sem þekkja staðreyndirnar málsins til hlítar. Að auki hafa málsmetandi fengið að skoðað þetta mál og furða sig á þessari vitleysu,“ segir hann. Málatilbúnaður sem ekki fáist staðist Þá gagnrýnir hann einnig einhliða fréttaflutning og undirróður sem hafi stjórnað þessu máli. „Öll önnur mál voru felld niður en þvældust fyrir um árabil. Réttþenkjandi fólk áttar sig á því að þessi málatilbúnaður fæst ekki staðist. Ég hef reynt að vaxa með þessu erfiða máli og notið ómælds stuðnings kollega minna, samstarfsfólks, vina og fjölskyldu. Fyrir það er ég mjög þakklátur,“ segir hann að lokum.
Heilbrigðismál Læknamistök á HSS Landspítalinn Dómsmál Reykjanesbær Tengdar fréttir „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að málinu verði snúið við í Landsrétti og segir það þurfa að hafa afleiðingar að bana einhverjum. 22. júlí 2026 19:31 Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að niðurstöðunni verði snúið við í Landsrétti og segir það verða að hafa afleiðingar að bana fólki. Við ræðum við hana og Hafstein Dan Kristjánsson lagaprófessor um málið í fréttum okkar á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis. 22. júlí 2026 18:03 Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Í ákvörðun Landlæknis um að svipta Skúla Tómas Gunnlaugsson starfsleyfi vegna alvarlegs brots í starfi fólst refsing að mati Héraðsdóms Reykjaness. Ekki má refsa mönnum tvisvar fyrir sama brot, og því var manndrápsákæru á hendur Skúla Tómasi vísað frá dómi. 22. júlí 2026 12:08 „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Lögmaður dóttur konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar læknis segir héraðsdóm setja varhugavert fordæmi með því að vísa máli læknisins frá. Skúli var ákærður fyrir manndráp en lögmaðurinn segir niðurstöðuna brjóta gegn Mannréttindasáttmála Evrópu. 22. júlí 2026 12:30 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira
„Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að málinu verði snúið við í Landsrétti og segir það þurfa að hafa afleiðingar að bana einhverjum. 22. júlí 2026 19:31
Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að niðurstöðunni verði snúið við í Landsrétti og segir það verða að hafa afleiðingar að bana fólki. Við ræðum við hana og Hafstein Dan Kristjánsson lagaprófessor um málið í fréttum okkar á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis. 22. júlí 2026 18:03
Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Í ákvörðun Landlæknis um að svipta Skúla Tómas Gunnlaugsson starfsleyfi vegna alvarlegs brots í starfi fólst refsing að mati Héraðsdóms Reykjaness. Ekki má refsa mönnum tvisvar fyrir sama brot, og því var manndrápsákæru á hendur Skúla Tómasi vísað frá dómi. 22. júlí 2026 12:08
„Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Lögmaður dóttur konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar læknis segir héraðsdóm setja varhugavert fordæmi með því að vísa máli læknisins frá. Skúli var ákærður fyrir manndráp en lögmaðurinn segir niðurstöðuna brjóta gegn Mannréttindasáttmála Evrópu. 22. júlí 2026 12:30