Sport

Aron er kominn inn í hausinn á Víkingum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron Sigurðarson elskar að æsa Víkingana upp.
Aron Sigurðarson elskar að æsa Víkingana upp. vísir/diego

Stórleikur KR og Víkings í gær var bráðskemmtilegur og dramatískur. Besta sætið gerir leikinn upp í dag.

Það var með ólíkindum að það kæmu ekki mörk í leikinn fyrr en í uppbótartíma. Lokatölur 1-1 og það voru frábær úrslit fyrir Víking sem heldur átta stiga forskoti á KR.

Skotin fengu að fjúka hjá fyrirliða KR, Aroni Sigurðarsyni, sem sagði Víkinga vera haltrandi og bensínlausa. Hann bætti svo við að KR væri besta lið landsins í dag.

Sölvi Ottesen, þjálfari Víkings, sagði að ummæli Arons væru ekki svaraverð. Það væri lítið vit í því sem Aron væri búinn að segja síðustu daga. Besta sætið er á því að Aron sé kominn í hausinn á Víkingum en hann skaut einnig á Víking fyrir Evrópuleik þeirra á dögunum.

Víkingar urðu svo fyrir enn einu áfallinu er Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði. Ljótt og opið beinbrot.

Svo var aðeins rennt yfir félagaskiptamarkaðinn sem var líflegur í gær.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×