Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Árni Sæberg skrifar 8. september 2026 12:39 Árásin var framin í bílakjallara undir Höfðatorgi. Qossay gaf skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað frá Jórdaníu og því er myndum af honum ekki til að dreifa. Vísir/Vilhelm Qossay Ali Yahya Alsadi, sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps í félagi við tvo aðra í bílakjallara undir Höfðatorgi, segist engan hafa barið umrætt kvöld. Hann hafi komið í bílakjallarann fyrir tilviljun og óvart sest inn í bíl sem hafði skömmu áður verið ekið á brotaþola á mikilli ferð.
Mennirnir þrír Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed sæta ákæru fyrir að hafa í félagi reynt að svipta íslenskan karlmann lífi í bílakjallaranum þann 17. mars síðastliðinn. Bíl, barefli og eggvopni beitt Í ákæru er Kareem sagður hafa ekið Land Rover-bifreið, á mikilli ferð á brotaþola, þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og féll í jörðina þar sem ákærði Qossay hafi barið brotaþola ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi og í kjölfarið hafi ákærði Mohamad stungið brotaþola í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni. Allt hafi þetta verið með þeim afleiðingum að brotaþoli var settur í lífshættulegt ástand og hlaut sár í húðbeði vinstri rasskinnar, lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost, brot á vinstri beinhjótu á vinstra upphandleggsbeini, mar, bólgur og fleiðusár á vinstri ökkla og þreifeymsli á vinstri handlegg og kvið. Gaf skýrslu frá Jórdaníu Qossay var annar sakborninga til þess að gefa skýrslu þegar aðalmeðferð í málinu hófst í morgun. Vísir hefur áður fjallað um framburð Kareems. Qossay gaf skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað, enda er hann staddur í Jórdaníu. Það var hann líka þegar málið var þingfest í júní síðastliðnum. Þá gaf hann ekki upp afstöðu sína til sakargifta en að sögn verjanda hans neitar hann sök, líkt og hinir tveir ákærðu. Hafi ætlað til kærustunnar Beðinn um að segja frá aðkomu sinni að málinu sagðist Qossay hafa verið heima hjá sér umrætt kvöld en ætlað í heimsókn til kærustu sinnar. Hann hefði því haft samband við vin sinn og beðið hann um að skutla sér til kærustunnar. Sá hefði fallist á það og mætt heim til hans á bíl við annan mann. Mennirnir tveir hefði þá spurt hann hvort ekki væri í lagi að þeir kæmu við í bílakjallaranum undir Höfðatorgi, sem hann hefði fallist á. Þegar þangað var komið hefði reykur og mikil ringulreið tekið við þeim. Hann hefði orðið var við einhvers konar átök og orðið mjög skelkaður. Ráfaði óvart inn í bílinn sem notaður var við árásina Hann hefði þá ákveðið að finna bíl félaga síns á ný og séð hvítan bíl í gegnum reykinn og sest upp í hann. Þá hefði hann séð meðákærða Kareem, sem hann kannaðist við úr fornu fari en væri ekki náinn. Þá hefði hann gert sér grein fyrir því að hann væri í röngum bíl. Þrátt fyrir það hefði hann verið um kyrrt í bílnum og setið í á meðan Kareem ók út úr bílakjallaranum. Skömmu seinna hefðu þeir verið handteknir. „Ég barði engan, ég réðst ekki á neinn og ég stakk engan með hníf. Þetta er það sem ég hef að segja um þetta.“ Aðspurður sagðist hann ekki hafa séð neina líkamsárás og að ekki hefði verið ráðist að honum. Hann ítrekaði að hann hefði engan beitt ofbeldi. Þá sagðist hann ekki þekkja hópana sem voru saman komnir í bílakjallaranum, enda hefði hann aðeins búið á Íslandi til skamms tíma. Kareem hefði hann þó þekkt áður en þeir fluttu til landsins. Rangur maður á röngum stað Sækjandi bar undir hann myndskeið sem sýnir hvernig ekið er á brotaþola, þannig að hann kastast upp í loft og marga metra áfram, og er barinn ítrekað með kylfu í kjölfarið. Hann kvaðst hvorki kannast við sjálfan sig á myndskeiðinu né þekkja mennina sem á því sjást. „Ég myndi segja ykkur ef þetta væri eitthvað sem ég kannaðist við. Ég verð hræddur við sjá þessi myndbönd aftur.“ Spurður út í það af hverju hann væri hræddur sagði hann það eðlilegt, enda hefði hann verið rangur maður á röngum stað og séð hluti sem hann átti ekki að sjá. Hann vildi ekki tjá sig nánar um hvað það væri nákvæmlega.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Bein útsending frá þingsetningu: Rætt við formenn og rýnt í pólitík og tísku Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent Fleiri fréttir „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Bein útsending frá þingsetningu: Rætt við formenn og rýnt í pólitík og tísku „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent